Segir Scherzinger hafa slitið sjö ára trúlofun þeirra
„Ég hafði vonast til að þetta færi á annan veg,“ skrifaði Evans á samfélagsmiðla.
Nicole Scherzinger, söngkona Pussycat Dolls, og Thom Evans, fyrrverandi atvinnumaður í ruðningi, hafa slitið trúlofun sinni eftir sjö ára samband.
Evans greindi frá því á Instagram í dag.
„Ég hafði vonast til að þetta færi á annan veg en ég virði ákvörðun Nicole og óska henni af heilum hug alls hins besta í því sem fram undan er,“ skrifaði Evans. Scherzinger hefur ekki tjáð sig opinberlega um sambandsslitin.
Thom Evans óskaði Nicole Scherzinger alls hins besta þegar hann greindi frá því að sjö ára sambandi þeirra væri lokið. Skjáskot/Instagram
Þau kynntust árið 2019 í sjónvarpsþáttunum The X Factor: Celebrity. Þar sat Scherzinger í dómnefnd en Evans keppti með sönghópnum Try Star.
Í júní 2023 tilkynntu þau um trúlofun sína og birtu myndir frá bónorðinu á Instagram eins og mbl.is greindi frá á sínum tíma.
Síðar sama ár sagði Scherzinger í viðtali að þau hefðu rætt um að gifta sig á heimaslóðum hennar á Havaí og halda brúðkaupsveisluna í Portúgal.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/62/1696289.jpg)
