Bjarni Ívar lætur sælkeradrauma rætast
Sumir dreyma um nýja skó en aðrir um eftirrétti. Bjarni Ívar Waage sér um að gleðja síðari hópinn og deilir hér uppskrift að rauðum flauelsjólad…
Bjarni Ívar Waage, sem meðal annars hefur starfað hjá Sandholtsbakaríi, er nú yfirbakari á Fosshótel Reykjavík. Hér er hann með rauðan flauelsjóladrumb sem er meðal eftirrétta á bandarísku jólahlaðborði veitingastaðarins Haust. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Það er til fólk sem dreymir um nýja bíla, hátískufatnað og nýja skó. Og svo erum við hin sem dreymir um eftirrétti. Þetta er grein fyrir okkur.
Á jólahlaðborði byrjar sumt fólk á forréttunum og sér enga sérstaka ástæðu til að yfirgefa þá. Aðrir spara pláss fyrir jólasteikina. Svo er það fólkið sem kannar eftirréttaborðið áður en það hengir af sér kápuna. Það vill örlitla sneið af öllu, helst í rannsóknarskyni, og fer svo aðra ferð til að staðfesta niðurstöðurnar.
Fyrir þann hóp er eftirréttaborðið á Haust á Fosshótel Reykjavík við Þórunnartún sérstakt tilhlökkunarefni. Þar fær handverk bakarameistarans að njóta sín og margir sækja jólahlaðborðið ekki síst eftirréttanna vegna. Jólasteikin verður að fyrirgefa að vera ekki alltaf aðalnúmerið.
Stundum er sætasta jólaskrautið kakan
Einn þeirra eftirrétta sem grípa augað er rauður flauelsjóladrumbur með silkimjúku ítölsku smjörkremi og rjómaosti. Þegar skorið er í kökuna kemur rauð kaka í ljós, vafin um ljósa kremfyllingu í fallegum spíral. Utan um hana má smyrja gljáandi marens sem er brugðið undir loga þar til yfirborðið tekur á sig gylltan lit. Fersk ber og léttur flórsykur fullkomna svo jólabúninginn.
Á bak við drumbinn stendur Bjarni Ívar Waage, yfirbakari á Fosshótel Reykjavík, sem deilir hér uppskriftinni. Þetta er kaka fyrir þá sem hafa jafn gaman af því að nostra við eftirréttinn og að bera hann á borð.
Rauður flauelsjóladrumbur Bjarna Ívars Waage með ítölsku smjörkremi og rjómaosti, hjúpaður léttbrenndum marens og skreyttur ferskum berjum og flórsykri. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Bandarískar jólahefðir setja svip á hlaðborðið, þar sem meðal annars eru kalkúnabringa, nautalund Wellington og sætkartöflumús með sykurpúðum. Soffía Dögg Garðarsdóttir hjá Skreytum hús hefur einnig sótt innblástur vestur um haf í jólaskreytingar staðarins.
Kökukarl frá unga aldri
Bjarni Ívar hóf störf við bakstur aðeins 15 ára gamall þegar hann fór á samning hjá Kaupfélagsbakaríinu í Borgarnesi árið 1997. Áhuginn hafði þó kviknað löngu fyrr.
„Það stóð alltaf til að verða bakari. Ég var ekki hár í loftinu þegar ég var að „hjálpa“ mömmu og ömmu minni við baksturinn, en það var aðallega til þess að fá að sleikja restarnar úr skálunum fyrir uppvask. Ég var mikill kökukarl,“ segir Bjarni Ívar.
Síðan hefur hann meðal annars starfað hjá Sandholtsbakaríi, Geirabakaríi í Borgarnesi og Brauði og Co. Þá stofnaði hann Ketó Kompaníið áður en hann gekk til liðs við Íslandshótel árið 2021.
Hæfileikar Bjarna koma berlega í ljós á bandaríska jólahlaðborði Hausts. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Jóladrumburinn hans kallar á nokkur handtök en vel má skipta vinnunni niður. Rúlluterturnar eru frystar yfir nótt og skornar á meðan þær eru enn frosnar svo skurðurinn verði hreinn. Þá er eftir skemmtilegasti hlutinn fyrir marga: að skreyta og sjá kökuna taka á sig endanlega mynd.
Rauður flauelsjóladrumbur
Uppskriftin er bökuð á tveimur bökunarplötum og gefur tvær rúllutertur sem má skipta í minni jóladrumba.
Botnar
- 8 egg
- 225 g sykur
- 150 g hveiti
- 30 g maíssterkja
- 22,5 g kakó
- 1½ tsk. lyftiduft
- ¾ tsk. salt
- 1½ tsk. vanilludropar
- 45 g olía
- 60 g súrmjólk
- 2–3 tsk. rauður gelmatarlitur
- Sykur til að strá yfir botnana eftir bakstur
Aðferð
- Hitið ofninn í 180 °C með blæstri. Klæðið tvær bökunarplötur með bökunarpappír.
- Þeytið egg og sykur mjög vel saman þar til blandan verður ljós og loftmikil, í um 7–10 mínútur.
- Sigtið saman hveiti, maíssterkju, kakó, lyftiduft og salt.
- Blandið þurrefnunum varlega saman við eggjablönduna.
- Hrærið olíu, súrmjólk, vanilludropum og matarlit saman í sérskál.
- Blandið svolitlu af deiginu saman við vökvann og blandið því síðan varlega aftur saman við afganginn af deiginu.
- Skiptið deiginu jafnt á bökunarplöturnar og smyrjið því út.
- Bakið í um 9–11 mínútur.
Ítalskt smjörkrem með rjómaosti
- 150 g eggjahvítur
- 300 g sykur
- 90 g vatn
- 450 g smjör
- 225 g rjómaostur
- 1½ tsk. vanilludropar
Aðferð
- Sjóðið sykur og vatn þar til sírópið nær 118 °C.
- Þeytið eggjahvíturnar þar til þær byrja að stífna.
- Hellið heitu sykursírópinu í mjórri bunu saman við eggjahvíturnar á meðan þeytt er.
- Þeytið áfram þar til marengsinn fer að kólna.
- Bætið smjörinu smám saman út í og þeytið þar til kremið verður silkimjúkt.
- Mýkið rjómaostinn í sérskál og blandið honum varlega saman við kremið ásamt vanilludropunum.
Samsetning
- Stráið sykri yfir botnana og hvolfið þeim á nýjar arkir af bökunarpappír. Fjarlægið pappírinn sem þeir voru bakaðir á.
- Takið svolítið af kreminu frá til skreytingar. Skiptið afganginum jafnt á botnana og smyrjið út.
- Rúllið botnunum upp og frystið yfir nótt.
- Skerið rúlluterturnar í þá lengd sem óskað er eftir á meðan þær eru frosnar svo skurðurinn verði hreinn.
- Skreytið með kreminu sem tekið var frá, ferskum berjum og flórsykri eftir smekk. Einnig má hjúpa drumbana með ítölskum marens samkvæmt uppskriftinni hér á eftir.
Ítalskur marens
- 200 g sykur
- 40 g vatn
- 100 g eggjahvítur
Aðferð
- Sjóðið sykur og vatn þar til sírópið nær 118 °C.
- Stífþeytið eggjahvíturnar.
- Hellið sírópinu í mjórri bunu saman við eggjahvíturnar á meðan þeytt er. Þeytið áfram þar til marensinn er orðinn þykkur og gljáandi.
- Smyrjið marensinum á jóladrumbana og brúnið yfirborðið létt með eldhúsbrennara.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/61/1696188.jpg)


