Gera ráð fyrir óvissustigi fram yfir helgi

Viðbúnaður vegna netógna verður áfram á óvissustigi fram yfir helgi að öllu óbreyttu.

Fylgst verður með þróun mála um helgina. Breytist staðan eða komi upp alvarleg atvik verður send út tilkynning og staðan endurmetin. Ljósmynd/Colourbox

Viðbúnaður vegna netógna verður áfram á óvissustigi fram yfir helgi að öllu óbreyttu.

Þetta kemur fram í uppfærðu stöðumati netöryggissveitarinnar CERT-IS og almannavarna í dag. Gert er ráð fyrir að næsta stöðumat verði birt fyrri hluta mánudags.

Fylgst verður með þróun mála um helgina. Breytist staðan eða komi upp alvarleg atvik verður send út tilkynning og staðan endurmetin.

CERT-IS hvetur fyrirtæki og stofnanir áfram til að tilkynna öll netöryggisatvik til sveitarinnar. 

Varnir héldu þrátt fyrir innbrotstilraunir

Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að sveitinni hefðu borist allmargar tilkynningar um innbrotstilraunir í gær en að varnir fyrirtækja og stofnana hefðu haldið.

Engar tilkynningar um ný, staðfest innbrot hefðu borist í gær eða það sem af var degi þegar viðtalið fór fram.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS virkjuðu á miðvikudag viðbragðsáætlun um verndun ómissandi upplýsingainnviða á óvissustigi. Í því felst aukin vöktun og samráð við rekstraraðila slíkra innviða.

Ákvörðunin var tekin í ljósi vaxandi netógnar síðustu vikna og aukinnar notkunar gervigreindar við netárásir. Árásirnar á Reykjavíkurborg og Bláa lónið á miðvikudag voru meðal þess sem varð tilefni ákvörðunarinnar.

Gagnaleki hjá borginni enn óstaðfestur

Fjöldi rafrænna þjónustukerfa Reykjavíkurborgar var tekinn tímabundið úr sambandi í kjölfar árásarinnar til að verja kerfi og gögn borgarinnar.

Magni sagði við mbl.is í dag að enn væri ekki hægt að útiloka gagnaleka og að óljóst væri hvort árásaraðilar hefðu komist yfir persónuupplýsingar. Stefnt væri að því að koma þjónustu borgarinnar í eðlilegt horf í dag.

Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, sagði við mbl.is í gær að þá hefði ekki legið fyrir hvort tengsl væru á milli árásanna á Reykjavíkurborg og Bláa lónið. 

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab