Segja hækkun gjalds vega þyngra en byggðaáætlun

Hækkun álagðs veiðigjalds í ár nemur hærri fjárhæð en sem nemur fyrirhuguðum framlögum úr nýrri byggðaáætlun á fimm árum, samkvæmt samanburði Sa…

Við Reykjavíkurhöfn. Mynd úr safni.

Við Reykjavíkurhöfn. Mynd úr safni. mbl.is/Eyþór

Hækkun álagðs veiðigjalds í ár nemur hærri fjárhæð en sem nemur fyrirhuguðum framlögum úr nýrri byggðaáætlun á fimm árum, samkvæmt samanburði Samtaka atvinnulífsins.

Samtökin telja að skattar og gjöld á sjávarútveg, fiskeldi og ferðaþjónustu hafi meiri áhrif á þróun byggða en þær aðgerðir sem áætlunin fjármagnar.

Þetta kemur fram í umsögn samtakanna til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um byggðaáætlun fyrir árin 2027–2041. Umsögnin var birt á vef Alþingis í dag.

Samtökin taka undir markmið tillögunnar um að efla atvinnulíf um land allt en segja aukna gjaldtöku á þessar þrjár atvinnugreinar vinna gegn því markmiði.

Bera hækkunina saman við framlög til fimm ára

Í umsögninni kemur fram að álagt veiðigjald hafi hækkað úr um 11,2 milljörðum króna í um 19,5 milljarða í ár. Til samanburðar telja samtökin að tilgreind framlög úr byggðaáætlun til einstakra aðgerða á árunum 2027–2031 nemi samtals um þremur milljörðum króna. Samkvæmt þingsályktunartillögunni geta ráðuneyti og stofnanir einnig lagt fé til aðgerðanna.

Að mati samtakanna þrengir aukin gjaldtaka svigrúm fyrirtækja til að fjárfesta og skapa störf á landsbyggðinni. Það geti veikt útsvarsstofn sveitarfélaganna sem áætluninni er ætlað að styrkja.

Segja gjaldtöku vinna gegn eflingu ferðaþjónustu

Samtökin nefna einnig að samkvæmt tillögunni eigi Flugþróunarsjóður að styðja við nýjar flugleiðir svo koma megi á reglulegu millilandaflugi um Akureyri og Egilsstaði. Markmiðið er að efla ferðaþjónustu allt árið.

Á sama tíma sé boðað nýtt náttúru- og innviðagjald, hærri virðisaukaskattur á aðgang að baðlónum og hækkun kílómetragjalds sem meðal annars leggst á bílaleigur. Að mati samtakanna getur sú gjaldtaka dregið úr eftirspurn eftir þjónustu sem stjórnvöld vilja efla.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab