Nektarmynd af leikmanni Swansea í dreifingu - Málið til rannsóknar

Velska knattspyrnufélagið Swansea City er sagt hafa hafið rannsókn eftir að nektarmynd, sem sögð er vera af einum leikmanna liðsins, fór í dreif…

Hörður Snævar Jónsson

Föstudaginn 27. nóvember 2026 15:30

Úr leik Swansea og Brentford í Championship deildinni

Velska knattspyrnufélagið Swansea City er sagt hafa hafið rannsókn eftir að nektarmynd, sem sögð er vera af einum leikmanna liðsins, fór í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Samkvæmt Daily Mail var myndin upphaflega tekin á Snapchat en henni var síðar deilt á samfélagsmiðlinum X af stuðningsmanni Cardiff City.

Myndin hefur síðan verið fjarlægð af samfélagsmiðlum vegna brota á notendaskilmálum. Þá hafa komið fram vangaveltur um að átt hafi verið við myndina með stafrænum hætti.

Málið kemur upp aðeins nokkrum dögum fyrir stórleik Swansea og Cardiff í ensku B-deildinni en liðin mætast á heimavelli Swansea á sunnudag.

Freyr Alexandersson er að öllum líkindum að taka við þjálfun Swansea á næstu dögum.

Mikil rígur er á milli félaganna en þau hafa ekki mæst síðan í janúar á síðasta ári þegar Cardiff vann 3-0 sigur.

Cardiff féll úr B-deildinni vorið 2025 en vann sér aftur sæti í deildinni á síðasta tímabili.

Swansea situr í áttunda sæti deildarinnar með 27 stig eftir 17 leiki á meðan Cardiff er í 17. sæti.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab