„Sérstök tilfinning að taka viðtal við sinn eigin bróður um atburði miðvikudagsins“
Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Morgunblaðinu lenti í þeirri sérstöku aðstöðu í gær að taka viðtal við bróður sinn í viðtalsþættinum Dagmál. …
Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Morgunblaðinu lenti í þeirri sérstöku aðstöðu í gær að taka viðtal við bróður sinn í viðtalsþættinum Dagmál. Ellefu árum eldri bróðir hennar er Viggó Matthías Sigurðsson verkefnastjóri á aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar.
Viggó stýrði björgunaraðgerðum þegar línuskipið Jökull ÞH 299 sökk um 60 sjómílur austur af Glettingi á miðvikudag.
„Það var sérstök tilfinning að taka viðtal við sinn eigin bróður um atburði miðvikudagsins.“
Viggó Matthías Sigurðsson. Mynd: Skjáskot Mbl.is.
Segir Andrea að það hafi viljað þannig til að hún átti að sjá um þáttinn þennan dag og Viggó var útnefndur af gæslunni til að mæta til Morgunblaðsins í viðtal um björgunarafrekið mikla, enda stýrði hann aðgerðum.
„Þannig lágu leiðir okkar systkina óvænt saman, þar sem störf okkar sköruðust í fyrsta skipti.“
Í viðtalinu lýsir Viggó ítarlega björgunaraðgerðunum ítarlega í viðtalinu og „því hversu blendnar tilfinningar fylgja því að bjarga lífi 14 manns þegar þrír farast. Útlitið var afar svart í upphafi og Viggó lýsir því sem kraftaverki hversu margir komust af. Í þeim efnum lék talstöð skipstjórans lykilhlutverk og einstök fórnfýsi þyrluáhafnarinnar sem tók þá ákvörðun að fara þrefalda þá vegalengd sem öryggisverklag kveður á um að þyrlan fari ein síns liðs.
Á sama tíma og þeir sem að aðgerðum komu gleðjast yfir hinu mikla björgunarafreki, og þjóðin með þeim, þá er sorgin mikil vegna þeirra þriggja sem létust.“
Systkinin Andrea og Viggó. Mynd: Skjáskot Mbl.is.
Segir Andrea að hugur allra sé hjá aðstandendum þeirra sem fórust, skipverjunum sem gengu í gegnum mikla þrekraun en komust lífs af og aðstandendum þeirra sem urðu fyrir miklu áfalli á meðan þeir biðu milli vonar og ótta eftir að heyra fregnir af afdrifum ástvina sinna.
Viðtalið Andreu við Viggó er öllum opið: „Enda snertir þessi harmleikur þjóðina alla.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗