Hjalti segir þetta hafa kostað íslensk heimili tug milljarða króna á sex árum – „Óábyrg útlánastefna“

Verkfræðingurinn Hjalti Árnason segir óábyrga útlánastefnu og vaxtadýfu Seðlabankans hafa kostað íslensk heimili tugi milljarða króna á undanför…

Kristinn H. Guðnason

Föstudaginn 27. nóvember 2026 15:00

Hjalti segir sveitarfélögin hafa grætt á kostnað heimilanna.

Verkfræðingurinn Hjalti Árnason segir óábyrga útlánastefnu og vaxtadýfu Seðlabankans hafa kostað íslensk heimili tugi milljarða króna á undanförnum sex árum. Íbúðir séu ekki venjuleg neysluvara og lúti ekki sömu lögmálum og þær.

„Vaxtadýfa Seðlabankans árið 2020 hefur kostað íslensk heimili tugi milljarða króna í auknum fasteignagjöldum á undanförnum sex árum,“ segir Hjalti í aðsendri grein á Vísi.

Sex ára yfirverð dýrkeypt

Reifar hann að stýrivextir Seðlabankans hafi tekið mikla dýfu árið 2020. Enduðu þeir undir einu prósenti.

„Það er vel þekkt að þegar vextir lækka þá geta lántakendur óverðtryggðra lána tekið hærri lán fyrir sömu laun og þannig hækkar fasteignaverð umfram launaþróun,“ segir hann. „Það gerðist einmitt þarna.“

Fasteignaverð hafi hækkað 23 prósent umfram laun á aðeins einu og hálfu ári eftir þetta eins og tölur Hagstofunnar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sýni. Það sem hafi gerst svo er að vextir hafi hækkað hratt og kaupmáttur lántaka minnkað sömuleiðis.

„Ef íbúðir væru venjuleg vara, þá hefðu þær einfaldlega lækkað aftur í verði sem hæfir hærra vaxtastigi. Það er þó gömul saga og ný að íbúðir á Íslandi lækka nánast aldrei að nafnvirði - þær standa frekar í stað og láta verðbólguna vinna vinnuna,“ segir hann.

Sveitarfélögin græddu en heimilin blæddu

Þannig hafi íbúðaverð frá toppnum árið 2023 lækkað úr 23 prósenta yfirverði í 8 prósent yfirverð í dag.

Sex ára viðvarandi yfirverð á íbúðum hafi haft víðtækar afleiðingar. Það er kæling á markaði hafi ollið tilheyrandi atvinnuleysi í byggingageiranum, fólk hafi leitað sér skjóls í verðtryggingunni og skuldbreytt úr hávaxta óverðtryggðum lánum og þá hafi 25 milljarða aukaskattur verið lagður á í gegnum fasteignagjöld. Sum sveitarfélög hafi reynt að milda áhrifin og lækkað fasteignagjaldaprósentuna en heilt yfir hafi sveitarfélögin notið góðs af þessu á kostnað heimilanna.

Gagnrýnisleysið sætir furðu

Að lokum spyr hann hvaða lærdóm sé hægt að draga af þessu öllu saman.

„Jú, að það er ekkert endilega góð hugmynd að bjóða almennum lántakendum upp á óverðtryggð fasteignalán á breytilegum vöxtum þegar við búum við kvika krónu í litlu, opnu hagkerfi,“ segir Hjalti. „Það sætir í raun furðu hversu litla gagnrýni fjármálakerfið fékk fyrir að bjóða venjulegu launafólki að spenna bogann til hins ýtrasta með áhættusömum, óverðtryggðum lánum á breytilegum vöxtum þegar stýrivextir voru í 0,75% – vöxtum sem gátu aldrei talist líklegir til að haldast svo lágir í ljósi vaxtasögu Íslands. Þessi óábyrga útlánastefna olli síðan þeim alvarlegu hliðaráhrifum sem nefnd eru hér að ofan.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab