Áfall fyrir íslenska landsliðið: Elín missir af EM

Elín Klara Þorkelsdóttir, enn besti leikmaður Íslands, verður ekki með íslenska kvennalandsliðinu í handbolta á Evrópumótinu í Rúmeníu vegna mei…

Elín Klara Þorkelsdóttir er meidd.

Elín Klara Þorkelsdóttir er meidd. mbl.is/Karítas

Elín Klara Þorkelsdóttir, enn besti leikmaður Íslands, verður ekki með íslenska kvennalandsliðinu í handbolta á Evrópumótinu í Rúmeníu vegna meiðslanna sem hún varð fyrir í 29:28-sigri á Svíþjóð í gær.

Elín Klara fór meidd af velli snemma leiks og hefur nú verið staðfest að hún geti ekki tekið þátt á mótinu. Ekki kemur fram í tilkynningunni hvers eðlis meiðslin eru en hún meiddist á hné.

Elín Klara missti einnig af heimsmeistaramótinu árið 2023 vegna meiðsla sem hún varð fyrir skömmu fyrir mótið.

Ísland mætir Svíþjóð aftur í Halmstad á morgun áður en haldið verður til Rúmeníu. Fyrsti leikur Íslands á EM verður gegn Slóveníu í Oradea á fimmtudaginn kemur, 3. desember.

Íslenska liðið leikur einnig gegn Svartfjallalandi 5. desember og Ungverjalandi 7. desember í A-riðli mótsins.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab