Tölvukerfi borgarinnar í gjörgæslu

Forstjóri netöryggisfyrirtækis ins Syndis, telur að árásin á kerfi borgarinnar hefði getað endað með lausnargjaldskröfu.

Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis, segir óábyrgt að velta upp möguleikum á meðan staðreyndir liggi ekki fyrir, enda gæti það valdið borgarbúum óþarfa áhyggjum. mbl.is/Eggert

Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, telur líklegt að netárásin á Reykjavíkurborg á miðvikudag hefði getað leitt til kröfu um lausnargjald hefðu árásaraðilarnir komist lengra inn í kerfi borgarinnar.

Engin slík krafa hefur þó verið gerð og ekki liggur fyrir hvert markmið árásaraðilanna var.

Þetta segir Anton í samtali við mbl.is en Syndis stýrir rannsókninni á netárásinni.

Hann segir peninga oftar en ekki vera hvatann að slíkum árásum en í þessu tilviki hafi árásaraðilarnir ekki komist svo langt.

Skaðinn hefði getað orðið meiri

Anton segir að tekist hafi að hamla útbreiðslu árásarinnar með skjótum viðbrögðum. Skaðinn hefði getað orðið meiri hefði ekki verið brugðist jafnhratt við.

Reykjavíkurborg reki gríðarstórt og víðfeðmt tölvukerfi og hafi árásin aðeins haft áhrif á lítinn hluta þess. Fleiri kerfi kunni að hafa verið tekin úr sambandi í varúðarskyni en árásaraðilarnir komust inn í.

Enn sé mikið um þreifingar á tölvukerfum og líkir Anton því eftirliti sem nú er haft með kerfum borgarinnar við gjörgæslu.

„Kerfin eru ekkert skemmd eða neitt slíkt,“ segir Anton en þau hafi verið tekin úr rekstri til að hamla útbreiðslu árásarinnar.

Nú sé aðallega unnið að því að endurnýja lykilorð og aðgangslykla. Kerfin verði tekin aftur í notkun hvert á fætur öðru í ákveðinni forgangsröð.

Enn óvíst hvort gögnum hafi verið stolið

Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður hjá netöryggissveitinni CERT-IS, sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að enn væri ekki hægt að útiloka gagnaleka.

Anton segir enn unnið að því að greina hvort árásaraðilarnir hafi skoðað gögn eða stolið þeim. Hann getur ekki sagt til um hvort persónuupplýsingar borgarbúa eða starfsmanna borgarinnar séu þar á meðal.

Hann segir almenningi þó ekki stafa sérstök hætta af árásinni eins og staðan er nú. Tekist hafi að stöðva árásina hratt og útbreiðsla hennar verið mjög takmörkuð.

Borgin muni upplýsa þá sem málið kann að varða.

Anton staðfestir að Persónuvernd hafi verið tilkynnt um árásina. Um sé að ræða upphafstilkynningu.

Hann á einnig von á að málið verði tilkynnt til lögreglu en staðfestir ekki að það hafi þegar verið gert.

Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður hjá CERT-IS, segir enn ekki hægt að útiloka gagnaleka.

Óstaðfestar upplýsingar

Óskar Jörgen Sandholt, sviðsstjóri þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við mbl.is í gær að ýmsar upplýsingar sem væru í umferð um netárásina ættu sér ekki stoð.

Magni sagði í samtali við mbl.is í dag að upplýsingar um að árásaraðilar hefðu komist yfir lykilorð og inn í gagnagrunn borgarinnar væru óstaðfestar. Að hans mati hefðu fréttir af því hvernig brotist var inn birst of snemma, áður en niðurstöður greiningar lágu fyrir.

Spurður út í ummæli Óskars nefnir Anton fréttir þar sem árásin var tengd við tiltekinn nýlegan veikleika í skýjaþjónustu Microsoft Azure.

Hann bendir á að þótt hluti tölvukerfa borgarinnar sé í skýjaumhverfi Microsoft þýði það ekki að umræddur veikleiki hafi verið nýttur við innbrotið. Engar sannanir hafi legið fyrir um það.

Ekki talið ráðlegt að kjörnir fulltrúar tjái sig

mbl.is hefur ítrekað leitað svara hjá forsvarsmönnum Reykjavíkurborgar síðustu tvo daga og óskað eftir viðbrögðum kjörinna fulltrúa.

Óskar vísaði í gær á CERT-IS þegar leitað var svara um umfang árásarinnar. Magni sagði hins vegar í samtali við mbl.is í dag að sveitin væri bundin trúnaði og hefði ekki umboð til að upplýsa nánar um einstök atvik.

Að sögn Magna gæti sveitin veitt frekari upplýsingar ef Reykjavíkurborg óskaði eftir því en það hefði borgin ekki gert sérstaklega.

Samkvæmt upplýsingum mbl.is hefur ekki verið talið ráðlegt að kjörnir fulltrúar tjái sig um árásina þar sem málið er tæknilegs eðlis.

Var mbl.is þess í stað vísað á Anton, sem segir Syndis stýra rannsókninni og svara fyrir framvindu hennar.

Óskar Jörgen Sandholt vísaði á netöryggissveitina CERT-IS þegar leitað var svara um umfang árásarinnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vinna allan sólarhringinn

Spurður hvers vegna ekki hafi verið veittar ítarlegri upplýsingar um árásina segir Anton að staðreyndir liggi ekki enn fyrir. Óábyrgt væri að velta upp möguleikum sem gætu valdið borgarbúum áhyggjum að óþörfu.

Hann vonast til að hægt verði að senda frá sér tilkynningar daglega en unnið er að rannsókninni allan sólarhringinn.

„Á mánudaginn vitum við alveg örugglega miklu, miklu betur stöðuna,“ segir Anton.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab