Staða Seðlabankans gæti haft áhrif á „núllið“

Ríkissjóður gerir ráð fyrir 6,5 milljarða króna vaxtatekjum frá Seðlabanka Íslands á næsta ári á sama tíma og auknar líkur eru taldar á að ríkis…

Ríkissjóður gerir ráð fyrir 6,5 milljarða króna vaxtatekjum frá Seðlabanka Íslands á næsta ári á sama tíma og auknar líkur eru taldar á að ríkissjóður þurfi að leggja bankanum til aukið eigið fé. 

Eigið fé Seðlabankans hefur minnkað töluvert á þessu ári og var í október líklega í námunda við 18 milljarða. Til samanburðar er eiginfjármarkmið Seðlabankans 150 milljarðar króna. 

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir í samtali við mbl.is eftir ríkisstjórnarfund í dag að auka framlag frá ríkissjóði til bankans geta haft áhrif á áform um hallalaus fjárlög.

Aðspurður hvort Seðlabankinn eigi enga fjármuni segir hann það af og frá. „Eigið fé Seðlabankans sveiflast með gengi krónunnar og það er vegna þess að skuldir bankans eru að mestu leyti í krónum,“ segir hann. 

„Eignir hans eru í gjaldeyri og þá hefur það þessi áhrif á eiginfjárstöðu en seðlabankar, eðli málsins samkvæmt, geta ekki farið á hausinn,“ segir hann jafnframt. 

Auknar líkur á eiginfjárframlagi

Í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem sent var fjárlaganefnd vegna vinnu við fjárlög næsta árs kemur fram að auknar líkur eru taldar á að Seðlabankinn kalli eftir eiginfjárframlagi frá ríkissjóði. 

„Raunverulega er þetta heimild sem bankinn hefur til að kalla eftir eiginfjárframlagi frá ríkinu. Við höfum átt samtal um þetta en það hafa engar ákvarðanir verið teknar,“ segir hann. 

Aðspurður hvort slíkt framlag myndi hafa áhrif á áform ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög svarar hann því játandi.

„Þetta er að vísu eiginfjárframlag sem þýðir að þetta er þá eign ríkisins hjá Seðlabankanum þannig að þetta eru ekki rekstrarútgjöld í þeim skilningi en þetta þarf auðvitað að fjármagna og það er áskorun,“ segir hann.

Vaxtatekjur á sama tíma og eiginfjárstaða veikist

Í sama minnisblaði segir að gert sé ráð fyrir að ríkissjóður fái 6,5 milljarða króna frá Seðlabankanum í vaxtatekjur af gjaldeyrisinnistæðum sínum. 

Vaxtagreiðslurnar bæta afkomu ríkissjóðs en skerða að öðru óbreyttu afkomu Seðlabankans og þar með eiginfjárstöðu hans. Á sama tíma gæti ríkissjóður þurft að afla fjár til að styrkja eiginfjárstöðu bankans. 

Daði segir að kallað sé eftir eiginfjárframlagi í takti við þróun á eigin fé Seðlabankans. Hann telur hins vegar eðlilegt að halda vaxtagreiðslum til ríkissjóðs og eiginfjárframlögum til bankans aðskildum. 

„Hins vegar það að greiða fyrir gjaldeyriseignir Seðlabanka ríkisins hjá Seðlabankanum. Það eru eðlileg samskipti milli ríkisins og bankans og það er aldrei hugsað og hefur aldrei verið þannig að framlag ríkisins til bankans sé í formi afsláttar á þessum vaxtagreiðslum,“ segir hann.

„Þetta snýst um rétta kanala og þetta eru hinir réttu kanalar, að það sé greitt fyrir það fé sem ríkið leggur inn hjá Seðlabankanum, sem er þá gjaldeyrir, og síðan ber ríkið þá ábyrgð á því að viðhalda eiginfjárstöðu bankans ef þess gerist þörf,“ segir hann. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab