Framlengja við Bruno sem gæti samt farið
Manchester United hefur nýtt sér ákvæði um að framlengja samning Bruno Fernandes til júní 2028, samkvæmt The Athletic. Samningur fyrirliðans átt…
Manchester United hefur nýtt sér ákvæði um að framlengja samning Bruno Fernandes til júní 2028, samkvæmt The Athletic. Samningur fyrirliðans átti að renna út næsta sumar.
Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að viðræðum um nýjan samning var frestað á meðan Fernandes og United lögðu áherslu á að bæta úrslitin.
Hún kemur í veg fyrir að hann geti frá og með janúar samið við erlent félag um að ganga til liðs við það án greiðslu næsta sumar.
Hann gæti þó enn yfirgefið félagið næsta sumar, en United getur nú krafist kaupverðs. Miðjumaðurinn hefur verið orðaður við félög á Ítalíu, Spáni og í Sádi-Arabíu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗