United staðfestir að búið sé að framlengja samning Bruno

Manchester United hefur nýtt sér ákvæði í samningi Bruno Fernandes um að framlengja samning hans um eitt ár.Frá þessu greinir David Ornstein, fr…

Manchester United hefur nýtt sér ákvæði í samningi Bruno Fernandes um að framlengja samning hans um eitt ár.

Frá þessu greinir David Ornstein, fréttamaður The Athletic.

Samningur portúgalska landsliðsmannsins átti að renna út næsta sumar en Fernandes er nú samningsbundinn United til júní árið 2028.

Samkvæmt Ornstein þýðir þetta þó ekki endilega að Fernandes verði áfram í herbúðum Manchester United á næsta tímabili.

Með því að nýta sér ákvæðið tryggir félagið hins vegar að það geti fengið greiðslu fyrir leikmanninn fari svo að hann verði seldur næsta sumar.

Fernandes, sem er 32 ára gamall, gekk til liðs við Manchester United frá Sporting í janúar árið 2020 og hefur verið einn mikilvægasti leikmaður liðsins allar götur síðan.

Portúgalinn er fyrirliði United.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab