Sitt sýndist hverjum og ekki er allt sem sýnist við fokdýra kolla í Góða hirðinum: „Þurfið ekkert að pirra ykkur á þessu frekar en þið viljið“
Kona sem gerði sér ferð í Góða hirðinn greinir frá því að henni hafi ofboðið hátt verðlag þar á kollum. Segist konan hafa keypt slíkan koll á 50…
Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 27. nóvember 2026 14:30
Alls konar munir og gersemar má finna í Góða hirðinum alla daga, þó sitt sýnist hverjum um verðlagið. Þessum munum var stillt upp í Jazzþorpinu í Garðabæ 2025. Mynd: Facebook.
Kona sem gerði sér ferð í Góða hirðinn greinir frá því að henni hafi ofboðið hátt verðlag þar á kollum. Segist konan hafa keypt slíkan koll á 500 kr. stykkið fyrir 15 árum í Góða hirðinum, í dag kosti stykkið 8.500 kr.
Málið vakti mikla umræðu í Facebook-hópnum: Vertu á verði - eftirlit með verðlagi.
„Mér er algjörlega ofboðið! Fyrir um 15 árum keypti ég svona stóla/kolla í Góða hirðinum, 8 stk, á nokkurra ára tímabili, á kr.500/stk. Stuttu eftir að ég hafði keypt þá, höfðu þeir hækkað í kr. 2.500/stk. Nú kosta þeir kr.8.500/stk. Það er eitthvað mjög skrýtið við suma verðlagningu þarna. Verðlag hefur ekki 17 faldast á 15 árum.“
Kollurinn umræddi. Mynd: Facebook.
„Þetta hetir lögmál um framboð og eftirspurn. Já og þú ert líka sk. „trendsetter.“ Keyptir sem sagt svona stóla og þá komust þeir í tísku og allir vildu eignast svona eins og þú áttir. Því varð eftirspurnin það mikil að seljandi gat snarhækkað verðið. Svona virkar kapítalisminn“, segir einn karlmaður í athugasemd.
„Þetta er bara alltof hátt verð fyrir notaða kolla í nitjaverslun. Nyrja verslanir eiga að vera þannig að maður gengur ánægður út. Ekki blánkur“, segir annar karlmaður.
„Hættið að borga þessi verð og þessi verð hætta að koma“, segir sá þriðji.
Kona ein bendir á að verð gætu verið mismunandi eftir hver verðmerki: „Satt að segja hef ég grun um að verðlagningin í Góða hirðinum sé afskaplega tilviljanakennd og byggi ekki endilega á neinu nema skapi þess sem er að prenta út verðmiða þann daginn.“
Karlmaður bendir á í gríni: „Hefur þú ekki séð píluspaldið á veggnum í verðlagsstofunni hjá þeim. Á spjaldinu eru alls konar tölur og verðið ræðst þar sem pílan lendir.“
Karlmaður einn sér ágóðann í málinu: „Getur þá selt þína 8stk á 64þ.“
Bendir á um að íslenska klassíska hönnun er að ræða
Karlmaður bendir á að um sé að ræða íslenska hönnun og framleiðslu þar sem nýr kollur kostar frá 17.700 kr. „Fyrir áhugasama, þessir klassísku stólar koma frá Sóló húsgögnum og þeir gera töfraverk í að endurnýja þá gömlu eða hanna nýjan með þér, er ekki að vinna þarna, ekki að auglýsa en hef keypt hjá þeim og gríðarlega sáttur.“
Kona mótmælir því að Góði hirðirinn sem fær alla hluti gefins geti selt hluti á þessu verði þrátt fyrir að um (íslenska) hönnun sé að ræða. „Þetta er ekki fornmunaverslun eða markaður fyrir notaðar hönnunarvörur. Fólk sem er að selja svona „hönnun“ prívat getur sett svona verð en mér finnst það ekki hægt hjá verslun sem fær allan sinn lager gefins.“
Segja lágt vöruverð hvetja fólk til að kaupa aðeins til endursölu
Einhverjir benda á að ef slíkur hlutur væri á lágu verði myndi einhver kaupa hann aðeins til endursölu og það á mun hærra verði.
Karlmaður spyr konuna af hverju „Af hverju ætti góði hirðirinn ekki að selja vöru á því verði sem einhver vill borga fyrir hana, hvort sem hún er hönnunarvara eða ekki? Skil ekki þau rök að þetta sé ekki markaður fyrir notaðar hönnunarvörur því þarna er einmitt verið að selja eina slíka, má það ekki bara því að GH fær stólinn gefins? Ágóðinn fer líka í að styrkja góð málefni, það er skrítið að krefjast þess að GH þurfi að selja allt á túkall og baunir, og lágmarka ágóðann sem fæst í styrkina.“
„Ég á nokkra svona sem ég hef keypt smátt og smátt sîðustu 13 ár. Greiði glaður 8500 krónur fyrir þá en hægt að fá einfaldari stóla í IKEA fyrir 895 krónur. Kaupið bara það sem hentar ykkur. Þurfið ekkert að pirra ykkur á þessu frekar en þið viljið,“ segir einn karlmaðurinn til viðbótar.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗