Í átta ára bann fyrir hættulega árás
Ekvadorski knattspyrnumaðurinn Jhon Perlaza hefur verið dæmdur í átta ára bann eftir að hafa kastað steini í aðstoðardómara, sem hlaut alvarlega…
Ekvadorski knattspyrnumaðurinn Jhon Perlaza hefur verið dæmdur í átta ára bann eftir að hafa kastað steini í aðstoðardómara, sem hlaut alvarlega áverka og þurfti að gangast undir aðgerð.
Atvikið átti sér stað í uppbótartíma í leik Ciudad de Yantzaza og Rio Aguarico í þriðju efstu deild í október.
Perlaza, sem var varamaður, hæfði aðstoðardómarann Lenin Giovanni Ojeda Nunez og leikurinn var flautaður af.
Knattspyrnusamband Ekvadors fann Perlaza „sekan um líkamsárás á dómara“ og bannaði honum að taka þátt í hvers kyns knattspyrnutengdri starfsemi til 19. október 2034.
Sambandið hefur farið fram á það við FIFA að bannið gildi um allan heim.
Yantzaza rak Perlaza og var félagið sektað um 2.000 dollara, auk þess sem því var gert að greiða rúmlega 4.000 dollara í lækniskostnað. Að sögn sambandsins þurfti dómarinn að gangast undir aðgerð og verður óvinnufær í 60 daga.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗