546 milljónir til 25 fjölmiðlaveitna

Úthlutunarnefnd hefur úthlutað 545,6 milljónum króna í almennan rekstrarstuðning til 25 einkarekinna fjölmiðlaveitna. Í fyrra fengu 28 fjölmiðla…

Alls bárust 27 umsóknir innan frests og var sótt um rúman milljarð króna í stuðning. mbl.is/Golli

Úthlutunarnefnd hefur úthlutað 545,6 milljónum króna í almennan rekstrarstuðning til 25 einkarekinna fjölmiðlaveitna. Í fyrra fengu 28 fjölmiðlaveitur alls 544 milljónir króna.

Alls bárust 27 umsóknir innan frests og var sótt um rúman milljarð króna í stuðning.

Fjárveitingin nam 554 milljónum króna og fór um 8,4 milljóna króna hluti hennar í umsýslu, sérfræðiaðstoð og annan kostnað við úthlutunina, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Fjölmiðlanefndar.

Árvakur og Sýn fá hæstu styrkina

Árvakur, sem gefur út Morgunblaðið og mbl.is, og Sýn, sem rekur meðal annars Vísi og Bylgjuna, fá hvort um sig 109,8 milljónir króna. Það jafngildir um 40% af heildarúthlutuninni. Félögin fengu einnig hæstu styrkina í fyrra, 103,9 milljónir króna hvort.

Sameinaða útgáfufélagið, sem gefur meðal annars út Heimildina og Mannlíf, fær þriðja hæsta styrkinn, 63,7 milljónir króna. Styrkur félagsins lækkar um 14 milljónir króna milli ára. 

Fjölmiðlatorgið, sem rekur DV.is, fær 43,5 milljónir króna.

Myllusetur, sem gefur meðal annars út Viðskiptablaðið og Fiskifréttir, fær 42,6 milljónir króna. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab