Búast við 22 þúsund pöntunum – Undirbúningur hófst strax í janúar
ELKO, sem rekur eina stærstu vefverslun landsins, gerir ráð fyrir um 22.000 pöntunum á elko.is vikuna í kringum Svartan föstudag.
Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. nóvember 2026 14:08
ELKO, sem rekur eina stærstu vefverslun landsins, gerir ráð fyrir um 22.000 pöntunum á elko.is vikuna í kringum Svartan föstudag. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í janúar, í nánu samstarfi við Bakkann, vöruhús Festi, sem sér um tínslu fyrir vefverslun ELKO.
Tvöföld afkastageta
„Undanfarin ár hafa stærstu söluvikur ársins verið krefjandi fyrir starfsemina í vöruhúsinu og ljóst var að við þyrftum að ráðast í breytingar til að gera enn betur. Viðskiptavinir ELKO eru vanir ákveðnu þjónustustigi og það er mikilvægt fyrir okkur að standa undir þeim væntingum, jafnvel þegar álagið er sem mest.“ segir Jónína Birgisdóttir, forstöðumaður þjónustusviðs ELKO, Í tilkynningu.
ELKO og Bakkinn hafa í sameiningu unnið að umfangsmiklu umbótaverkefni með það að markmiði að auka afkastagetu og bæta skilvirkni við afgreiðslu vefpantana.
Flæði í vöruhúsinu hefur verið einfaldað, skannavirkni uppfærð og aðstaða starfsfólks ELKO við pökkun pantana stórefld með tvöföldun pökkunarsvæðisins. Með bættum verkferlum, aukinni mönnun og stærra pökkunarsvæði hefur tekist að tvöfalda afkastagetu við afgreiðslu vefpantana.
„ELKO þekkir þarfir viðskiptavina sinna og leggur línurnar varðandi þjónustuna sem það vill veita. Við hjá Bakkanum höfum lagað afgreiðsluferlið í vöruhúsinu að þeim kröfum svo pantanir komist fyrr til viðskiptavina. Það var ánægjulegt að sjá breytingarnar skila sér strax á fyrstu tilboðsdögunum. Þar sjáum við styrkinn sem felst í að vera systurfélög í Festi, við breytum vinnulaginu okkar svo ELKO geti veitt viðskiptavinum sínum betri þjónustu,“ segir Eva Guðrún Torfadóttir, framkvæmdastjóri Bakkans vöruhótels.
„Við höfum lært mikið af síðustu árum og höfum nýtt þá reynslu til að gera betur. Það er ánægjulegt að sjá undirbúninginn skila mælanlegum árangri strax. Í verkefninu lögðum við mikla áherslu á sveigjanleika svo við getum aukið afkastagetuna hratt þegar álagið er mest og dregið úr henni þegar það minnkar. Þannig tryggjum við góða þjónustu og hagkvæman rekstur. Markmiðið er að viðskiptavinir finni sem minnst fyrir álaginu sem fylgir stærstu söluviku ársins.“ segir Jónína.
Aukin samkeppni
Jónína segir samkeppnina við stórar erlendar netverslanir hafa aukið mikilvægi framúrskarandi þjónustu.
„Í dag getur fólk pantað nánast hvað sem er, hvaðan sem er. Okkar helsta samkeppnisforskot er sú góða þjónusta sem við bjóðum upp á. Við leggjum áherslu á góða upplifun í gegnum allt kaupferlið, ekki bara hraða afhendingu heldur líka að vera til staðar þegar viðskiptavinurinn þarf á okkur að halda eftir kaup. Hvort sem viðskiptavinur þarf ráðgjöf fyrir kaup, aðstoð eftir kaup eða úrlausn ef eitthvað bilar, þá viljum við geta brugðist hratt og vel við. Mælingar okkar sýna að góð þjónusta er ein af ástæðunum fyrir því að fólk velur ELKO og það er árangur sem við erum virkilega stolt af.“ segir Jónína.
ELKO rekur öflugt þjónustuver sem sinnir um 140.000 erindum árlega og býður jafnframt upp á víðtæka viðgerðar- og eftirkaupaþjónustu. „Þá býður ELKO upp á 30 daga verðöryggi og framlengdan jólagjafaskilarétt til 31. janúar 2027 þar sem viðskiptavinir mega opna og prófa vöruna heima hjá sér. Við viljum að fólk versli við okkur af öryggi og komi aftur vegna þeirrar þjónustu sem það fær.“
Stærsti afhendingarskápur landsins
ELKO vinnur jafnframt að uppsetningu stærsta afhendingarskáps landsins við verslunina í Lindum, í samstarfi við Dropp en skápurinn ætti að vera komin i notkun í desember.
„Með nýja afhendingarskápnum bætum við þægilegum afhendingarmöguleika þar sem viðskiptavinir geta sótt pantanir þegar þeim hentar, án þess að bíða í röð. Skápurinn léttir jafnframt verulega á álaginu við þjónustuborðið í versluninni. Þetta er enn eitt skrefið í að gera þjónustuna einfaldari og aðgengilegri,“ segir Jónína.
Raunhæfar væntingar um afhendingu Þrátt fyrir umfangsmikinn undirbúning segir Jónína mikilvægt að vera hreinskilin um að afhending geti tekið lengri tíma þegar álagið nær hámarki.
„Viðskiptavinir ELKO eru vanir hraðri og góðri þjónustu og við leggjum metnað okkar í að standa undir þeim væntingum. Þegar þúsundir pantana berast á skömmum tíma getur afhending þó tekið aðeins lengri tíma en venjulega. Við höfum lagt mikla vinnu í að styrkja ferlana, auka afkastagetuna og bæta upplýsingagjöf til viðskiptavina. Það er á stærstu söludögum ársins sem reynir hvað mest á þjónustuna og þá skiptir mestu máli að við stöndum undir því trausti sem viðskiptavinir sýna okkur með því að velja ELKO.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗