Án félags en fær rúmlega milljarð
Knattspyrnumaðurinn Dele Alli mun fá 7,6 milljónir punda, um 1,25 milljarða íslenskra króna, við slit á fyrirtæki sem heldur utan um ímyndarrétt…
Knattspyrnumaðurinn Dele Alli mun fá 7,6 milljónir punda, um 1,25 milljarða íslenskra króna, við slit á fyrirtæki sem heldur utan um ímyndarrétt hans, þrátt fyrir að vera nú án félags.
Hinn þrítugi Alli, sem er fyrrverandi miðjumaður Tottenham, beindi tekjum af styrktarsamningum inn í fyrirtækið á meðan hann var að spila.
Greiðslan er fé sem safnaðist upp áður. Hann á einnig tvö fasteignafjárfestingarfélög.
Alli skoraði 18 mörk í ensku úrvalsdeildinni á sínu besta tímabili hjá Tottenham og lék 37 landsleiki fyrir England.
Hann hefur hins vegar átt erfitt uppdráttar undanfarin ár og ekki leikið keppnisleik frá því í mars á síðasta ári.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗