Norse Atlantic óskar eftir gjaldþrotaskiptum

Norska lággjaldaflugfélagið Norse Atlantic tilkynnti í dag að það hygðist óska eftir gjaldþrotaskiptum, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að le…

Þessi skilaboð bíða þeirra nú sem skoða heimasíðu Norse Atlantic.

Þessi skilaboð bíða þeirra nú sem skoða heimasíðu Norse Atlantic. Skjáskot af vefsíðu flugfélagsins

Norska lággjaldaflugfélagið Norse Atlantic tilkynnti í dag að það hygðist óska eftir gjaldþrotaskiptum, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að leigusamningum um allar flugvélar félagsins var rift.

Miklar hækkanir á verði flugvélaeldsneytis hafa komið illa við félagið.

„Stjórn Norse Atlantic Airways AS hefur tekið þá erfiðu ákvörðun að óska eftir gjaldþrotaskiptum þrátt fyrir umfangsmiklar tilraunir félagsins og samstæðunnar til að finna lausn,“ segir í tilkynningu félagsins til kauphallarinnar í Ósló.

„Okkur þykir afar leitt hvaða áhrif þetta hefur á farþega okkar, starfsfólk og samstarfsaðila.“

Beiðni um gjaldþrotaskipti verður lögð fram hjá héraðsdómi í Agder í Noregi.

Öllu flugi aflýst

Norse Atlantic var stofnað árið 2021 og hefur sérhæft sig í langflugi. Félagið varaði við því á miðvikudag að fjárhagsstaða þess væri grafalvarleg og kvaðst eiga í viðræðum um að tryggja fjármögnun til skamms tíma.

Félagið greindi frá því í dag að því hefði verið tilkynnt um riftun leigusamninga um allar tólf flugvélar þess, sem eru af gerðinni Boeing 787 Dreamliner. Félagið hefur mótmælt riftun samninganna.

Öllu flugi félagsins var aflýst bæði í gær og í dag.

Stéttarfélag flugmanna greindi frá því í gær að félagið hefði ekki greitt starfsmönnum sínum laun fyrir nóvember eins og til stóð í vikunni.

Hækkun eldsneytisverðs aukið á vandann

Fjárhagsvandræði Norse Atlantic eru ekki ný af nálinni en þau hafa ágerst vegna mikillar hækkunar á verði flugvélaeldsneytis í kjölfar stríðsins í Mið-Austurlöndum.

Spænska flugfélagið Plus Ultra tilkynnti á þriðjudag að það væri að hætta starfsemi. Þá óskaði lettneska flugfélagið Air Baltic í september eftir greiðsluskjóli samkvæmt 11. kafla bandarískra gjaldþrotalaga.

Gengi hlutabréfa í Norse Atlantic í kauphöllinni í Ósló hefur lækkað um meira en 99% frá áramótum. Markaðsvirði félagsins nam í dag aðeins 2,4 milljónum Bandaríkjadala, sem jafngildir um 300 milljónum íslenskra króna.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab