Hver rændi ömmu rokk? - Tónlistargagnrýni Andreu Jóns vindur upp á sig
Vitringarnir 3 eru á leið á svið í Hörpu þriðju jólin í röð með sýningu sína, sem er sambland af söng, skemmtun og óborganlegu gríni þremenninga…
Vitringarnir 3 eru á leið á svið í Hörpu þriðju jólin í röð með sýningu sína, sem er sambland af söng, skemmtun og óborganlegu gríni þremenninganna Eyþórs Inga Gunnlaugssonar, Friðriks Ómars Hjörleifssonar og Jógvan Hansen. Grín þar sem þeir gera óspart grín að hver öðrum og mest að sjálfum sér.
Til að kynna herlegheitin hafa strákarnir alla jafna skellt í nokkur myndbönd þar sem þeir bregða á leik. Í því nýjasta sitja Friðrik Ómar og Jógvan og hlusta á Andreu Jónsdóttur, ömmu rokk, í þætti hennar á Rás 2.
Strákarnir verða kampakátir þegar amma rokk byrjar tónlistargagnrýni sína um nýjasta lag þeirra, Pakkaðu mér inn. Fljótlega kemur þó í ljós að henni finnst þeir Friðrik Ómar og Jógvan ekki syngja vel.
„Jógvan Hansen er með óttalega svona pirrandi rödd. Og svo framburðurinn finnst mér ekki sérstakur. Og Friðrik Ómar er ekki góður heldur. Hann er óttalega svona klemmdur og svo er hann svona tilgerðarlegur bara og bara lélegur.
En Eyþór Ingi, hann er bara, hann ber þetta lag uppi, má eiginlega segja. Þannig að lagið fær nú alveg fjóra og hálfa stjörnu. Kannski bara fimm stjörnur. Já það fær bara fimm stjörnur. Eyþór bjargar þessu bara alveg.“
Fljótlega kemur í ljós að það er alls ekki amma rokk sem talar.
„Hún hefur greinilega tekið aðeins of langa vakt á Dillon í nótt,“ segir Friðrik Ómar alls ekki hress með gagnrýnina.
Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗