Harmleikurinn á Jökli: Skipaverkfræðingur ítrekað bent á undarlega kröfu yfirvalda um sleppibúnað björgunarbáta
Þrír fórust þegar fiskiskipið Jökull sökk á miðvikudagskvöldið. Fjórtán komust lífs af. Atburðarásin var hröð eftir að lúga brotnaði á skipinu o…
Þrír fórust þegar fiskiskipið Jökull sökk á miðvikudagskvöldið. Fjórtán komust lífs af. Atburðarásin var hröð eftir að lúga brotnaði á skipinu og sjór tók að flæða óhindrað inn. Nítján mínútum eftir að neyðarkall barst frá skipinu var það sokkið og áhöfnin í sjónum í flotgöllum. Fram hefur komið að tveir gúmmíbjörgunarbátar voru um borð í skipinu. Annar þeirra festist í gálga sínum og komst ekki á flot og hinn losnaði og rak í burtu áður en áhöfnin komst um borð.
Skipaverkfræðingurinn Kári Logason segir að harmleikurinn gefi fullt tilefni til að ræða útbúnað björgunarbáta á skipum sem eru skráð í íslenska skipaskrá. Kári segir í grein hjá Vísi í dag að undanfarin ár hafi íslenska ríkið beinlínis krafist þess að björgunarbátar séu ekki settir upp samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda og eins og vottun bátanna gerir ráð fyrir. Breyta þurfi þessu fyrirkomulagi til hins betra.
„Fyrst skal þó segja að hugur minn er hjá fjölskyldum þeirra sem fórust og þeim sem komust lífs af, votta ég þeim alla mína samúð sem og að ég sendi innilegar þakkir til allra björgunaraðila og áhafna fiskiskipa sem tóku þátt í björgun þennan örlagaríka dag. Þessi grein er ekki með nokkrum hætti ætluð sem gagnrýni á atburðinn þegar að Jökull sekkur, hvorki á áhöfn né útgerð Jökuls ÞH. Það er ekkert sem segir að það sem textinn sem á eftir fer inniheldur hafi verið neinn áhrifavaldur í því að skipverjar Jökuls hafi ekki náð til sinna lífbjörgunarbáta. Skipið var engu að síður búið þessum búnaði.
Ég veit ekki hvort búnaðurinn hafi átt sök á því að áhöfnin missti frá sér björgunarbátana núna þegar að Jökullinn sökk, og það er ekki mitt að skýra heldur mun RNSA [rannsóknarnefnd samgönguslysa] leiða í ljós ályktanir um það af hverju skipverjar náðu ekki til björgunarbátanna. Ég veit þó að stuttur texti sem fer hér á eftir á erindi við alla sem treysta á þennan búnað sem er hluti af sleppibúnaði björgunarbáta á íslenskum skipum í dag og eiga skilið að vita hvernig þessum málum er háttað, að séríslenskur búnaður sem ekki er viðurkenndur af framleiðendum björgunarbáta til sjósetningar þeirra.“
Ekki ætlast til að björgunarbátum sé skotið frá borði
Kári bendir í grein sinni á að áratugum saman hafi íslensk stjórnvöld krafist þess að gúmmíbjörgunarbátum sé skotið frá skipi með skotgálgum. Þetta hafi verið framfaraskref fyrir um fjörutíu árum þegar engar alþjóðlegar kröfur voru til um fyrirkomulag og sjósetningu björgunarbáta. Tímarnir hafa breyst en íslenska regluverkið fylgdi því ekki eftir. Samkvæmt reglugerð um öryggi fiskiskipa sem var í gildi á árunum 2004-2024 var gerð krafa um slíka gálga, þrátt fyrir að þá hafi björgunarbátar ekki verið framleiddir með slíkt í huga. Björgunarbátar í dag séu hannaðir út frá því að þeir falli í sjóinn undan eigin þunga. Þar með er með öllu óvíst hvernig þeir þola að vera skotið frá borði af miklu afli.
Lýsir Kári því að hann og kollegar hans hafi margoft bent á þetta vandamál. Árið 2021 upplýsti hann Samgöngustofu um málið þegar hann óskaði eftir undanþágu frá skotgálgakröfunni við hönnun ísfisktogara. Samgöngustofa sagði nei. Aftur reyndi hann árið 2023 og fékk þá tímabundna undanþágu. Skömmu síðar var regluverkinu breytt og skotgálgar urðu valkvæðir, en áfram heimilaðir.
„Í maí 2023 skrifaði Samgöngustofa sjálf bréf til innviðaráðuneytisins og lagði til að krafan yrði gerð valkvæð. Í bréfinu kemur fram að stofnuninni hafi ítrekað borist ábendingar um að búnaðurinn hafi ekki þróast með umheiminum og sé jafnvel hættulegur. Skoðunarmenn hafi misst fingur við eftirlit þegar búnaðurinn fór í gang við skoðun og fyrirtæki hafi hætt að þjónusta búnaðinn.“
Kári furðar sig á því að skotgálgar séu enn leyfilegir enda sé það hvorki í samræmi við alþjóðlegar reglur né leiðbeiningar frá framleiðendum gúmmíbjörgunarbáta. Hann hvetur alla sem gera út skip með skotgálgum að skipta um búnað í þágu öryggis sjómanna. Hann telur eins tilefni til að banna slíkan búnað með öllu enda sé enginn björgunarbátur vottaður fyrir skotgálgum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗