Grunur um falsaðar nektarmyndir

Lögreglustjórinn á Suðurlandi rannsakar meint kynferðisbrot manns en við rannsókn málsins fundust nektarmyndir af konum í farsíma hans. Lögreglu…

Taldi maðurinn áframhaldandi vörslu lögreglu á tækjunum fela í sér óhóflega og ólögmæta skerðingu á stjórnarskrárvörðum eignarrétti sínum. Lögreglustjóri vísaði á hinn bóginn til þess að sakamálið væri enn til rannsóknar og fullt tilefni væri til að rannsaka innihald allra tækjanna. Ljósmynd/Colourbox

Lögreglustjórinn á Suðurlandi rannsakar meint kynferðisbrot manns en við rannsókn málsins fundust nektarmyndir af konum í farsíma hans. Lögreglu grunar að andlitsmynd af brotaþola hafi verið skeytt inn á myndirnar.

Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Suðurlands þar sem hafnað var kröfu mannsins um að aflétt yrði haldi á fjórum leikjatölvum og tveimur farsímum.

Héraðsdómur gerði þó athugasemd við að óhæfilega langur tími væri liðinn frá haldlagningu munanna án þess að rannsókn á innihaldi þeirra hefði farið fram. Taldi dómurinn skilyrði fyrir áframhaldandi haldi engu að síður uppfyllt.

Lagt hald á fjórar leikjatölvur

Samkvæmt því sem fram kemur í málatilbúnaði mannsins gerði lögreglan á Suðurlandi húsleit á heimili hans 9. janúar og lagði hald á tvo farsíma, tvær PlayStation 5-leikjatölvur, eina PlayStation 4-leikjatölvu og eina Xbox-leikjatölvu.

Maðurinn kvaðst hafa veitt lögreglu sjálfviljugur skriflegt samþykki fyrir rannsókn og gagnaöflun úr tækjunum.

Lögregla tók einnig við fartölvu mannsins 24. febrúar. Henni hafði þegar verið skilað þegar krafa mannsins um afléttingu halds var tekin fyrir í héraðsdómi 18. nóvember.

Taldi brotið gegn eignarrétti sínum

Verjandi mannsins hafði ítrekað óskað eftir því að lögregla skilaði mununum, meðal annars með erindum 23. júní, 6. september og 8. september.

Maðurinn byggði meðal annars á því að lögregla hefði þegar afritað gögn úr öðrum farsímanum, af gerðinni OnePlus Nord 3, í heild sinni og lokið rannsókn á þeim í febrúar. Lögregla hefði því þegar tryggt þau sönnunargögn sem þar væri að finna.

Þá hefði ekkert komið fram sem benti til þess að leikjatölvurnar geymdu sönnunargögn eða tengdust hinum ætluðu brotum.

Taldi maðurinn áframhaldandi vörslu lögreglu á tækjunum fela í sér óhóflega og ólögmæta skerðingu á stjórnarskrárvörðum eignarrétti sínum.

Lögreglustjóri vísaði á hinn bóginn til þess að sakamálið væri enn til rannsóknar og fullt tilefni væri til að rannsaka innihald allra tækjanna. Þau gætu öll verið nettengd og á þeim væri unnt að vista og geyma gögn, þar á meðal ljósmyndir.

Nektarmyndir taldar geta haft sönnunargildi

Í forsendum héraðsdóms kemur fram að við skoðun á fyrrgreindum OnePlus-farsíma hafi fundist nektarmyndir af konum og að lögreglu gruni að andlitsmynd af brotaþola hafi verið skeytt inn á myndirnar.

Taldi héraðsdómur ljóst að innihald símans gæti haft sönnunargildi í málinu. Jafnframt væri mögulegt að ákæruvaldið gerði síðar kröfu um upptöku símans.

Ekki lá fyrir að rannsókn á innihaldi annarra haldlagðra tækja væri lokið og staðfesti fulltrúi lögreglustjóra það við fyrirtöku málsins.

Óhæfilega langur tími liðinn

Héraðsdómur gerði sérstaka athugasemd við þann tíma sem liðinn var frá haldlagningu munanna. Rúmir tíu mánuðir voru liðnir frá húsleitinni þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi.

„Þrátt fyrir að óhæfilega langur tími sé liðinn frá því að munirnir voru haldlagðir án þess að rannsókn hafi farið fram á efnisinnihaldi þeirra, þá breytir það ekki því að skilyrði halds eru enn fyrir hendi,“ segir í forsendum héraðsdóms.

Samkvæmt lögum um meðferð sakamála skal aflétta haldi á munum þegar þess er ekki lengur þörf. Héraðsdómur taldi að því tímamarki væri ekki náð og hafnaði kröfu mannsins um afléttingu halds með úrskurði 19. nóvember.

Landsréttur féllst á það með lögreglustjóra að skilyrði laganna til haldlagningar munanna væru uppfyllt og staðfesti úrskurð héraðsdóms að öðru leyti með vísan til forsendna hans.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab