Meintur kynferðisbrotamaður vildi leikjatölvurnar sínar til baka

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að lögreglu sé heimilt að halda áfram haldlagningu á farsímum og leikjatölvum í eigu…

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að lögreglu sé heimilt að halda áfram haldlagningu á farsímum og leikjatölvum í eigu manns sem er til rannsóknar vegna meintra kynferðisbrota. Maðurinn krafðist þess að tækjunum yrði skilað en þeirri kröfu var hafnað.

Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á tækin við húsleit á heimili mannsins 9. janúar 2026. Um var að ræða tvo farsíma, tvær PlayStation 5 leikjatölvur, eina PlayStation 4 tölvu og Xbox-leikjatölvu. Einnig tók lögregla  Acer-fartölvu af honum í febrúar en henni hefur síðan verið skilað.

Maðurinn taldi að lögregla hefði ekki lengur neina ástæðu til að halda hinum tækjunum. Hann benti meðal annars á að búið væri að afrita gögn úr OnePlus-farsíma hans og að grunnskoðun á Acer-fartölvunni hefði ekki leitt neitt saknæmt í ljós. Hann taldi jafnframt að ekkert benti til þess að leikjatölvurnar hefðu sönnunargildi í málinu.

Verjandi hans hafði ítrekað óskað eftir því að tækjunum yrði skilað, meðal annars í júní og september. Maðurinn taldi áframhaldandi haldlagningu óhóflega skerðingu á eignarrétti sínum og vísaði til þess að samkvæmt lögum ætti að aflétta haldi þegar þess væri ekki lengur þörf.

Andlitsmynd af brotaþola skeytt inn á nektarmyndir

Lögreglustjórinn á Suðurlandi mótmælti kröfunni og sagði rannsókn málsins enn standa yfir. Öll tækin gætu verið nettengd og geymt gögn sem hefðu þýðingu fyrir rannsóknina.

Í úrskurði héraðsdóms kom fram að við skoðun á OnePlus-símanum hefðu fundist nektarmyndir af konum. Grunur væri um að andlitsmynd af brotaþola hefði verið skeytt inn á myndirnar. Taldi dómurinn því ljóst að innihald símans gæti haft sönnunargildi og að síminn gæti jafnframt orðið grundvöllur kröfu um upptöku.

Þá hefði rannsókn á öðrum tækjum ekki verið lokið. Dómurinn viðurkenndi að óhæfilega langur tími væri liðinn frá haldlagningunni án þess að rannsókn á innihaldi tækjanna hefði farið fram. Það breytti þó ekki því að lagaskilyrði fyrir áframhaldandi haldlagningu væru enn uppfyllt.

Landsréttur féllst á að skilyrði laga um haldlagningu væru fyrir hendi og staðfesti úrskurð héraðsdóms 26. nóvember 2026. Ekki var úrskurðað um kærumálskostnað.

Úrskurði Landsréttar og Héraðsdóms Suðurlands í málinu má lesa hér. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab