Margar flóknar ákvarðanir við björgunarstarfið

Jens Þór Sigurðsson, stýrði TF-GRÓ þegar farið var út á rúmsjó á eftir sautján skipverjum Jökuls ÞH. Hann fer yfir björgunarafrekið í Spursmálum…

Hermann Guðmundsson, Jens Þór Sigurðarson, Andrea Sigurðardóttur og Leó Árnason eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum. mbl.is/samsett mynd.

Jens Þór Sigurðsson, stýrði TF-GRÓ þegar farið var út á rúmsjó á eftir sautján skipverjum Jökuls ÞH. Hann fer yfir björgunarafrekið í Spursmálum dagsins. Þar ræðir hann björgunarstarfið og hvaða ákvörðunum hann stóð frammi fyrir á ólíkum tímapunktum meðan á því stóð.

Þátturinn er aðgengilegur öllum í spilaranum hér að neðan og hefst klukkan 14.00.

Landsbyggð í stórræðum

Í þættinum er einnig rætt við Leó Árnason, forstjóra Landsbyggðar en fyrirtækið hefur staðið í stórræðum undanfarin ár við uppbyggingu nýs miðbæjar á Selfossi. Nú stefnir fyrirtækið á mikla uppbyggingu á Höfn í Hornafirði en áður en að því kemur munu íbúar sveitarfélagsins kveða upp úr um hvort þeir séu hlynntir verkefninu eða ekki. Íbúakosning um áætlanir Landsbyggðar standa yfir frá 5. til 15. desember næstkomandi.

Fréttavikan gerð upp

Í þættinum er einnig rætt við Hermann Guðmundsson, forstjóra Kemi og Andreu Sigurðardóttur, blaðamann á Morgunblaðinu. Þau fara yfir fréttir vikunnar þar sem fyrrnefnt björgunarafrek ber að sönnu hæst. Þau munu hins vegar einnig drepa niður á öðrum stórum fréttamálum, meðal annars úr pólitíkinni.

Athyglisverður og upplýsandi þáttur á mbl.is klukkan 14.00 í dag.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab