Gefst ekki upp á landsliðinu

„Maður er svekktur en ég þarf bara að gera betur og vona að kallið komi. Ég ætla ekkert að gefast upp á því,“ sagði Hanna Þráinsdóttir, körfukna…

Hanna Þráinsdóttir hefur leikið með íslenska landsliðinu en ekki verið í síðustu hópum. Ljósmynd/FIBA

„Maður er svekktur en ég þarf bara að gera betur og vona að kallið komi. Ég ætla ekkert að gefast upp á því,“ sagði Hanna Þráinsdóttir, körfuknattleikskona hjá Leiden í Hollandi, í samtali við Morgunblaðið um baráttuna fyrir sæti í íslenska landsliðinu.

Hanna fylgdist vel með síðustu leikjum landsliðsins og leyndi því ekki að hana hefði langað að vera með.

„Auðvitað langar mann alltaf að fá kallið og markmiðið er alltaf að komast í landsliðið. Ég hef stundum verið með og stundum ekki.“

Hún gladdist þó yfir frammistöðu liðsins og hafði sérstaklega gaman af því að fylgjast með fyrrverandi liðsfélaga sínum.

„Það er frábært að sjá Rebekku, fyrrverandi liðsfélaga minn, brillera. Hún hefur verið ótrúlega flott og Berglind Katla er rosalega efnileg. Það er mjög gaman að sjá árangurinn og framfarirnar hjá landsliðinu.“

Hanna segir aðlögunina hjá Leiden hafa gengið vel og hlutverk sitt vera skýrt.

„Ég er með skýrt hlutverk, er svolítið varnarvopn hjá þeim og hef staðið mig vel í því, held ég. Svo er ég líka að finna mig sóknarlega.“

Nánar er rætt við Hönnu í Morgunblaðinu sem kemur út í fyrramálið. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab