Kristall Máni svaf ekki í þrjá sólarhringa á meðan hann beið eftir fréttum

Kristall Máni Ingason, leikmaður norska úrvalsdeildarfélagsins Brann, óttaðist það versta þegar hann meiddist á hné í landsleik Íslands gegn Búl…

Hörður Snævar Jónsson

Föstudaginn 27. nóvember 2026 13:30

Kristall Máni Ingason. Mynd: DV/KSJ

Kristall Máni Ingason, leikmaður norska úrvalsdeildarfélagsins Brann, óttaðist það versta þegar hann meiddist á hné í landsleik Íslands gegn Búlgaríu á dögunum.

Kristall hefur verið einn besti leikmaður Brann á tímabilinu en hann ræddi erfiða lífsreynslu sína í samtali við norsku sjónvarpsstöðina TV 2.

„Þegar læknarnir skoðuðu mig inni á vellinum var ekkert sem benti til þess að þetta hefði farið vel. Hnéð var mjög óstöðugt,“ sagði Kristall.

Vegna bólgu í hnénu þurfti Kristall að bíða í þrjá daga eftir því að fá úr því skorið hversu alvarleg meiðslin væru.

„Fyrstu þrír dagarnir voru bara ömurlegir. Það er langt síðan mér hefur liðið svona illa.“

„Ég var alveg viss um að þessu tímabili væri lokið og óttaðist að allt næsta tímabil væri farið. Ég held að ég hafi ekki sofið í þrjá sólarhringa. Hugurinn var á fullu og ég var að velta því fyrir mér hvernig ég ætti að komast í gegnum næstu tíu mánuði.“

Niðurstöður myndatöku leiddu hins vegar í ljós að meiðslin voru mun vægari en óttast var.

„Ég hef sjaldan fundið fyrir jafn mikilli gleði og þegar ég fékk staðfestingu á því að meiðslin væru ekki alvarleg.“

Kristall er þegar kominn aftur til æfinga með Brann.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab