Þögn hjá Frey fyrir stórleik
Freyr Alexandersson, þjálfari karlaliðs Rosenborgar í fótbolta, mun ekki veita fjölmiðlum viðtöl í dag, annan daginn í röð, á meðan óvissa ríkir…
Freyr Alexandersson, þjálfari karlaliðs Rosenborgar í fótbolta, mun ekki veita fjölmiðlum viðtöl í dag, annan daginn í röð, á meðan óvissa ríkir um framtíð hans hjá félaginu.
Rosenborg mætir Molde á morgun í norsku úrvalsdeildinni í mikilvægum leik í baráttunni um Evrópusæti.
Jørgen Stenseth, fjölmiðlafulltrúi Rosenborgar, staðfesti þetta við norska fjölmiðla. Ákvörðunin var tekin í samráði við Frey svo hann gæti einbeitt sér að undirbúningi liðsins. Hann mun hins vegar sitja fyrir svörum eftir leikinn.
„Félagið er í óvenjulegri stöðu í aðdraganda eins mikilvægasta leiks ársins. Þess vegna kemur fyrirliðahópurinn fram fyrir fjölmiðla fyrir hönd leikmannahópsins,“ sagði Stenseth.
Swansea vill fá Frey til starfa og hefur þjálfarinn staðfest viðræður umboðsmanna sinna við velska félagið. Hann hefur jafnframt lýst því að það sé draumur hans að þjálfa í enska boltanum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗