Vilhelm Jónsson skrifar: Þjóðaröryggi á biðlista
Þrír sjómenn hafa látið lífið. Fjórtán skipverjar og fjölskyldur þeirra þurfa að takast á við afleiðingar hörmunganna. Þegar umræðan hljóðnar og…
Þrír sjómenn hafa látið lífið. Fjórtán skipverjar og fjölskyldur þeirra þurfa að takast á við afleiðingar hörmunganna. Þegar umræðan hljóðnar og þjóðlífið færist aftur í sitt venjulega horf situr þetta fólk eftir með sína lífsreynslu.
Fyrir tæpum mánuði skrifaði ég pistil undir fyrirsögninni „Höllin má bíða – mannslífin ekki“. Þar vakti ég meðal annars athygli á nauðsyn fastrar starfsstöðvar björgunarþyrlu á Akureyri. Ég var fjarri því að vera fyrstur til þess. Á nauðsyn þess hefur verið bent árum saman.
Ég hefði óskað þess að þurfa aldrei að fylgja þeim skrifum eftir við þessar hörmulegu aðstæður.
Yfirklór eftir á
Nú er rætt af endurnýjuðum krafti um fjölgun björgunarþyrlna. Hvort þær verða keyptar eða leigðar er aukaatriði.
Skýringar um að þegar hafi verið farið að huga að fjölgun þyrlna hljóma í mínum eyrum sem yfirklór nema stjórnvöld geti lagt fram gögn um ákvarðanir, fjármögnun og tímasetningar sem lágu fyrir áður en harmleikurinn varð.
Það er nöturlegt ef mannslíf þurfa að glatast áður en stjórnmálamenn vakna til vitundar um skyldur sínar.
Það er reginmunur á því að huga að öryggi þjóðarinnar og tryggja það.
Hversu margar ríkisstjórnir, hversu mörg fjárlög og hversu mörg nefndarálit þarf til að afgreiða jafn mikilvægt öryggismál?
Var það fjárskortur, röng forgangsröðun eða einfaldlega sinnuleysi?
Við vitum ekki hvort styttri viðbragðstími hefði breytt afdrifum sjómannanna. Sú óvissa má hins vegar aldrei verða skjól fyrir þá sem bera ábyrgð á björgunarviðbúnaði þjóðarinnar.
Skóflurnar og sjávargróðurinn
Á meðan varðskip, sem kostað hafa milljarða, hafa árum saman legið við bryggju vegna rekstrarvanda hefur ekki skort stórhug við undirbúning Þjóðarhallar og nýs fangelsis.
Skóflustungur, hátíðarræður, bros og myndatökur.
Skóflurnar virðast betur fjármagnaðar en þjóðaröryggið.
Varðskip eru ekki keypt fyrir milljarða til þess að safna sjávargróðri á skipsbotninn við bryggju.
Hvaða vit er í því að verja milljörðum í kaup á varðskipum ef ekki fæst fé til að halda þeim úti?
Það er ekki sparnaður að láta dýran tækjakost standa ónotaðan. Það er sóun á almannafé.
Þjóðaröryggi verður hvorki tryggt með hátíðarræðum né sjálfhóli stjórnmálamanna.
Kjarkurinn er misjafn eftir viðfangsefnum
Stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins hafa hagnast stórlega á nýtingu auðlindar þjóðarinnar á meðan ríkissjóður glímir við viðvarandi hallarekstur.
Samt þarf sífellt að velta því fyrir sér hvort þjóðin hafi efni á að tryggja öryggi sjómannanna sem sækja þessi verðmæti.
Það er löngu tímabært að stjórnvöld sýni þann kjark að sækja eðlilegan arð fyrir þjóðina af nýtingu eigin auðlindar.
Ekki virðist skorta kjarkinn þegar seilst er í vasa Jónu og Gunnu til að fjármagna ríkisreksturinn.
Hvers vegna reynist þá svo erfitt að tryggja að nýting sjávarauðlindarinnar standi undir nauðsynlegum öryggisviðbúnaði?
Arðurinn af auðlindinni virðist eiga greiðari leið í land en björgunarbúnaðurinn út á miðin.
Mannslíf og póstnúmer
Forstjóri Landhelgisgæslunnar upplýsti að aðeins ein björgunarþyrla hefði verið til taks þegar neyðarkallið barst.
Ein þyrla.
Í eylandi sem státar af því að vera ein fremsta sjávarútvegsþjóð heims.
Föst starfsstöð björgunarþyrlu á Akureyri er ekki eingöngu öryggismál sjómanna.
Hugsum um stórslasað fólk eftir bílslys, vinnuslys eða alvarleg veikindi fjarri höfuðborgarsvæðinu. Að ógleymdum erlendum ferðamönnum sem lenda í slysum á þjóðvegum landsins, þar sem slæmt ástand vega og erfiðar aðstæður geta torveldað björgunaraðgerðir.
Hugsum um aðstandendur sem bíða milli vonar og ótta á meðan dýrmætar mínútur líða.
Fjarlægðirnar hafa ekki styst á meðan stjórnmálamenn hafa rætt málið.
Það er auðvelt að tala fjálglega um byggðastefnu og búsetujafnrétti. En hvað eru þau fyrirheit mikils virði þegar mannslíf liggja við?
Á póstnúmer fólks að ráða möguleikum þess á að lifa af?
Biðlistinn sem enginn vill bera ábyrgð á
Í heilbrigðiskerfinu birtist forgangsröðunin með öðrum hætti.
Fólk bíður mánuðum og jafnvel árum saman eftir læknismeðferð. Heilsunni hrakar, fólk missir starfsgetu, tekjur skerðast og fjölskyldur bera afleiðingarnar.
Árin líða á meðan verið er að hanna og framkvæma það sem ég hef kallað bútasauminn við Hringbraut.
Sjúkdómar taka sér hins vegar ekki hlé á meðan stjórnvöld koma sér saman um framtíðarskipan heilbrigðisþjónustunnar.
Kostnaður við heilbrigðiskerfið er gjarnan ræddur eins og biðin sjálf sé ókeypis.
Hún er það ekki.
Sjúklingurinn greiðir með heilsunni, fjölskyldan með lífsgæðum sínum og samfélagið með glataðri starfsgetu og auknum útgjöldum.
Hversu margir hafa látist á biðlistum heilbrigðiskerfisins? Hversu mörgum hefði mátt forða frá varanlegu heilsutjóni með skjótari meðferð?
Ef stjórnvöld hafa ekki svör við þessum spurningum er full ástæða til að krefjast þess að þeirra verði aflað.
Það er óásættanlegt að afleiðingar biðarinnar séu ekki gerðar upp með sama hætti og fjárhagsleg afkoma ríkissjóðs.
Biðlisti er ekki læknismeðferð og biðstofan er ekki lækning.
Ekki geta allir látið pota sér í forgang. Þeir sem ekki hafa efni á öðrum úrræðum eiga oft engra annarra kosta völ en að bíða og vona að heilsan gefi sig ekki á undan kerfinu.
Stjórnmálamenn mættu hafa hugfast að skóflustungur eru teknar víðar en við hátíðlegar athafnir á vegum ráðuneytanna.
Þær eru líka teknar í kirkjugörðum.
Það eru ekki allar skóflustungur tilefni til fagnaðar.
Stjórnarskipti eru ekki sakaruppgjöf
Viðvera ráðherra í samhæfingarstöð almannavarna þegar neyðarástand skapast er sjálfsögð.
En pólitísk ábyrgð hefst löngu áður en neyðarkallið berst.
Stjórnarandstaðan þarf heldur ekki að leggja mikið á sig við að semja áfellisdóm yfir núverandi ríkisstjórn. Sumir þeirra sem þar sitja ættu einfaldlega að fletta upp eigin fjárlögum frá fyrri tíð og íhuga eigið ráðaleysi.
Það er ódýr pólitík að gagnrýna úr stjórnarandstöðu það sem menn létu sjálfir óunnið í ríkisstjórn.
Ábyrgð á langvarandi vanrækslu verður ekki afhent næsta ráðherra ásamt lyklunum að ráðuneytinu.
Nú þarf tímasetta og fjármagnaða framkvæmdaáætlun um fjölgun björgunarþyrlna, fasta starfsstöð á Akureyri og fullnægjandi úthald varðskipanna.
Ekki enn eina nefndina.
Ekki enn eina viljayfirlýsinguna.
Ekki enn eitt loforðið sem næsta ríkisstjórn fær í arf.
Þjóðaröryggi og heilbrigðisþjónusta eru grundvallarskyldur ríkisvaldsins en ekki munaður sem þjóðin veitir sér þegar vel árar.
Við þurfum varðskip á miðunum, björgunarþyrlur innan seilingar og heilbrigðiskerfi sem sinnir fólki áður en það er um seinan.
Mannslíf eiga ekki að vera afgangsstærð í fjárlögum ríkisins.
Leggið skóflurnar frá ykkur. Sinnið skyldum ykkar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗