Ásgeir Elí öskraði þegar hann var kominn hálfa leið upp í þyrluna: „Djöfull er ég glaður að sjá ykkur“

„Klukkutíma áður en þyrlan kom var ég búinn að halda utan um einn háseta sem er skjálfandi.

„Klukkutíma áður en þyrlan kom var ég búinn að halda utan um einn háseta sem er skjálfandi. Ég er endalaust að segja „þú ert nagli, þú getur þetta, hjálp er á leiðinni“,“ segir Ásgeir Elí Gerðarson, átján ára háseti sem var um borð í Jökli ÞH299 sem sökk á miðvikudag, í viðtali sem var birt í hádegisfréttum Bylgjunnar. Þrír létust í sjóslysinu en fjórtán björguðust.

Ásgeir Elí var einn þeirra níu sjómanna sem náðu að binda sig saman á meðan þeir biðu eftir björgun og var hann síðasti maðurinn á lífi sem var hífður um borð í TF-GRÓ. 

„Svo eru nokkrir aðrir ótrúlega kaldir. Sjór kominn inn á okkur alla. Ég er endalaust í því modi að vera bara að hjálpa öðrum, hugsaði ekkert út í mig. Svo er loksins híft mig upp. Þegar ég var kominn hálfa leið upp í þyrlu, ég bara öskra, djöfull er ég glaður að sjá ykkur,“ segir hann.

„Þetta er lífsreynsla. Ég á aldrei eftir að gleyma þessu. Þetta verður með mér alla mína ævi.“

Ítarlegt viðtal við Ásgeir Elí verður svo birt á Vísi síðar í dag. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab