Nanna Kristín þakkar Karen og áhorfendum fyrir samfylgdina: „Takk fyrir að fíla eða ekki fíla hrátt kynlífið, klósettferðirnar, fylleríið“

Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona, leikstjóri og framleiðandi sjónvarpsþáttanna Fleiri pabbahelgar!, þakkar áhorfendum fyrir að hofa á þættin…

Ragna Gestsdóttir

Ragna Gestsdóttir

Föstudaginn 27. nóvember 2026 12:57

Nanna Kristín í hlutverki Karenar. Mynd: Facebook.

Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona, leikstjóri og framleiðandi sjónvarpsþáttanna Fleiri pabbahelgar!, þakkar áhorfendum fyrir að hofa á þættina. Sömuleiðis þakkar hún karakter sínum Karen fyrir samfylgdina og óskar henni velfarnaðar.

„Karen mín! Nú eru Fleiri Pabbahelgar okkar liðnar. Gangi þér vel í öllu því spaugilega hversdagsdrama sem lífið á eftir að bjóða þér upp á.“

Þættirnir sem eru sex talsins og voru frumsýndir á RÚV. Þáttaröðin er framhald af Pabbahelgum, sem sýnd var árið 2019, og fjallar um Karen, einstæða þriggja barna móður og hjónabandsráðgjafa, sem þarf að takast á við unglingsbörn, fyrrverandi eiginmann á sama tíma og íslenskan stefnumótaheim. 

Nanna Kristín í hlutverki Karenar. Mynd: Facebook.

Nanna Kristín þakkar einnig fyrir viðtökur áhorfenda við þáttunum: 

„Hjartans þakkir, þið sem horfðuð á línulega dagskrá RÚV eða hámhorfðuð í Spilaranum! Takk fyrir að fíla eða ekki fíla hrátt kynlífið, klósettferðirnar, fylleríið og að vera sammála um að við konur göngum í gegnum alls konar.“

Nanna Kristín í hlutverki Karenar. Mynd: Facebook.

Segist Nanna Kristín hafa verið hissa yfir öllum skilaboðunum sem hún fékk, en þyki ótrúlega vænt um þau: 

„Ég var smá hissa að fá öll skilaboðin. En vá hvað mér hefur þótt vænt um þau og heyra hvernig þið hafið tengt við persónurnar og aðstæður þeirra, jafnvel séð eitthvað úr eigin lífi í þeim. Það er líklega það besta við að segja sögur, þegar þær halda áfram að lifa hjá öðrum.“

Nanna Kristín í hlutverki Karenar. Mynd: Facebook.

Nanna Kristín þakkað lokum samstarfsfólki sínu og öllum sem höfðu trú á verkefninu:

„TAKK til alls þessa kraftmikla samstarfsfólks sem kom að gerð þáttanna. Ég hefði aldrei getað gert þetta ein! Þvílík hæfileikabúnt sem komu saman og ég er svo stolt af því sem við gerðum. Þúsund kossar! Takk líka til þeirra sem höfðu trú á verkefninu, styrktu það og keyptu á sínum tíma!

Ég ELSKA íslenska sjónvarps- og kvikmyndagerð! Gerum meira af alls konar efni!“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab