Gæti snjóað talsvert á láglendi á laugardag

Talsverð snjókoma gæti orðið á láglendi á laugardag þegar ný lægð fer yfir landið.

Allmikil úrkoma fylgir lægðinni að sögn Trausta. Austan við lægðarmiðjuna er útlit fyrir rigningu í hlýrra lofti. Vestan við hana er vindur hægari og horfur á snjókomu til fjalla. Hvort einnig snjóar að ráði á láglendi fer eftir því hvar lægðin fer hjá. mbl.is/Eyþór

Talsverð snjókoma gæti orðið á láglendi á laugardag þegar ný lægð fer yfir landið.

Trausti Jónsson veðurfræðingur segir að það ráðist af braut lægðarinnar hvort úrkoman vestan við lægðarmiðjuna fellur sem snjór eða slydda og hversu mikil hún verður.

Á spákorti Evrópureiknimiðstöðvarinnar sem Trausti birtir á veðurbloggi sínu, Hungurdiskum, er lægðarmiðjan við Hornafjörð klukkan 21 á laugardagskvöld.

Trausti segir útlit fyrir að lægðin fari til norðvesturs yfir landið. Loftþrýstingur fellur hratt á undan henni og stígur jafnhratt þegar hún er gengin hjá.

Rigning austan við lægðina

Allmikil úrkoma fylgir lægðinni að sögn Trausta. Austan við lægðarmiðjuna er útlit fyrir rigningu í hlýrra lofti. Vestan við hana er vindur hægari og horfur á snjókomu til fjalla. Hvort einnig snjóar að ráði á láglendi fer eftir því hvar lægðin fer hjá.

Samkvæmt kortinu verður hvassast suðaustan og austan við lægðarmiðjuna. Trausti segir óvíst hvort hvassasti vindurinn nái inn á land. Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir sunnan hvassviðri eða stormi á austanverðu landinu á laugardagskvöld.

Yfir 100 millimetrar á Austfjörðum

Laugardagslægðin kemur í kjölfar djúprar lægðar sem olli mikilli rigningu á Austfjörðum. Þegar Trausti skrifaði færsluna seint á fimmtudagskvöld hafði meira en 100 millimetra úrkoma mælst á fleiri en einum stað á Austfjörðum. Í kjölfar þeirrar lægðar berst kaldara loft til landsins með skúrum og éljum.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab