Flugvirkar fella kjarasamning við Icelandair

Félagsmenn Flugvirkjafélags Íslands hafa hafnað nýjum kjarasamningi á milli félaganna fyrir tímabilið 1. janúar 2026 til 1. september 2028, en a…

Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands.

Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands. mbl.is/Hulda Margrét/Eyþór

Félagsmenn Flugvirkjafélags Íslands hafa hafnað nýjum kjarasamningi á milli félaganna fyrir tímabilið 1. janúar 2026 til 1. september 2028, en atkvæðagreiðslu um samninginn á meðal félagsmanna lauk í dag.

Samninganefnd félagsins skrifaði undir samkomulagið í síðustu viku og voru þeir í kjölfarið lagðir fyrir félagsmenn.

Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, sagði við það tækifæri að samningurinn fæli ekki í sér miklar launahækkanir, en að hann hafi ekki lagt í vana sinn að skrifa undir samninga nema að vera þokkalega sáttur.

Í tilkynningu frá Icelandair er greint frá niðurstöðunni.

„Það eru mikil vonbrigði að samningar hafi ekki verið samþykktir af félagsmönnum FVFÍ. Við munum nýta næstu daga til þess að ákveða næstu skref,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab