Óskar Magnússon kann að halda partí
Hverjir voru hvar?
Óskar Magnússon rithöfundur og lögfræðingur bauð í partí í gær til þess að fagna útkomu glæpasögunnar Hvalamorð. Teitið fór fram á Catalínu í Kópavogi sem er annálaður partístaður.
Útgáfuboðið var fjörugt og skemmtilegt enda er Óskar vinamargur. Höfundur las nokkur skondin brot upp úr Hvalamorðum og svo mætti hljómsveitin Klettar og lék fyrir dansi. Hana skipa Rúnar Þór, Jonni Ólafs, Þórir Baldursson og Rúnar Villa.
Gestalistinn var fjölbreyttur en þangað mættu Einar Kárason rithöfundur og aldargamall vinur Óskars, Sigurður Guðni Valgeirsson fyrrverandi fjölmiðlastjarna og sonur hans, Stefán Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Sýnar, Þorsteinn Már Baldvinsson í Samherja og Hjörvar Kristjánsson verkefnastjóri útgerðar Samherja, Jón Gunnarsson þingmaður, Brynjar Níelsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Guðmundur Árni Stefánsson fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði og eiginkona hans, Jóna Dóra Karlsdóttir stofnandi Nýrrar dögunar, Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Sigurður Gísli Pálmason eigandi Ikea og Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins.
Þar voru líka sr. Önundur Björnsson og sr. Kristján Arason, Bjarni Harðarson bókaútgefandi, Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Sigurbjörn Magnússon lögmaður og stjórnarformaður Árvakurs, útgáfufélags Smartlands.
Þar voru líka Magnús Óskarsson lögmaður og sonur Óskars og Hrafnhildar Ingu Sigurðardóttur, Þorbjörn Þórðarson lögmaður, Kristín Þórðardóttir sýslumaður, Guðmundur Hermannsson fyrrverandi fréttastjóri Morgunblaðsins, Edda Björk Ragnarsdóttir lögfræðingur og tengdadóttir Óskars, Eiríkur Jónsson stjörnublaðamaður og Petrína Sæunn Úlfarsdóttir ofurbeib og starfsmaður í Menntasjóði námsmanna.
Eins og sjá má á ljósmyndunum Eggerts Jóhannessonar var mannfólkið í essinu sínu enda ekki á hverjum degi sem færi gefst á að hittast á þessum annálaða stað í Hamraborg!
Guðmundur Hermannsson fyrrverandi fréttastjóri á Morgunblaðinu og Óskar Magnússon rithöfundur og fyrrverandi útgefandi blaðsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Kristín Þórðardóttir sýslumaður og Kristján Arason prestur. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Feðgarnir Sigurður Þór Valgarðsson og Stefán Sigurðsson mættu eldhressir í boðið en Sigurður og Óskar eru gamlir vinir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


















