Leita 50% hækkunarmöguleika

Á nýlegri málstofu norska eignastýringarfyrirtækisins Storebrand í Reykjavík útskýrði David Harris, sjóðstjóri alþjóðlega hlutabréfasjóðsins SKA…

David Harris, sjóðstjóri hlutabréfasjóðsins SKAGEN Focus.

David Harris, sjóðstjóri hlutabréfasjóðsins SKAGEN Focus. Morgunblaðið/Eggert

Á nýlegri málstofu norska eignastýringarfyrirtækisins Storebrand í Reykjavík útskýrði David Harris, sjóðstjóri alþjóðlega hlutabréfasjóðsins SKAGEN Focus, hvernig sjóðurinn fer gegn straumnum með virðisfjárfestingu að leiðarljósi.

Sjóðurinn leitar tækifæra meðal lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem minni gaumur er gefinn, þar sem hlutabréfaverðið endurspeglar meiri svartsýni en langtímahorfur um afkomu réttlæta. Teymi sjóðsins greinir síðan tiltekna drifkrafta breytinga, svo sem bata í afkomu eða betri nýtingu fjármagns, sem gætu minnkað bilið milli hlutabréfaverðs og innra virðis (e. fair value) á næstu tveimur til þremur árum.

Eins og sjóðstjórinn útskýrði í samtali við Morgunblaðið fá smærri fyrirtæki oft minni athygli greinenda. „Það getur gefið fjárfestum tækifæri til að kaupa fyrirtæki á talsvert lægra verði en raunverulegt virði þeirra er. Þegar teymið fjárfestir í nýju fyrirtæki leitar það að minnst 50% hækkunarmöguleika miðað við mat sitt á innra virði,“ segir Harris.

Hvernig vitið þið hvenær á að selja?

„Við setjum verðmarkmið út frá því hvers virði við teljum fyrirtækið vera, miðað við það sem það getur hagnast um á venjulegu ári. Sanngjarnt virði breytist yfirleitt hægt. Þegar hlutabréfin ná markmiði okkar seljum við og endurfjárfestum þar sem við sjáum þann hækkunarmöguleika sem við gerum kröfu um.“

Er starfið streituvaldandi?

„Sumir dagar eru annasamari en aðrir, en þetta er mjög spennandi. Maður lærir mikið um hvernig heimurinn virkar.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab