Ökumaður fólksbifreiðar lést á Suðurstrandarvegi
Einn lést í umferðarslysi á Suðurstrandarvegi í gær, ökumaður fólksbifreiðar.Kemur það fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Einn lést í umferðarslysi á Suðurstrandarvegi í gær, ökumaður fólksbifreiðar.
Kemur það fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
DV greindi frá því í gær að Krýsuvíkurvegi var lokað um klukkan 17 milli Suðurstrandarvegar og Leiðarendavegar, vegna umferðarslyss á Suðurstrandarvegi.
Vörubíll og fólksbíll lentu í árekstri, mikill viðbúnaður var á vettvangi og slysið mjög alvarlegt, en við áreksturinn kviknaði í fólksbifreiðinni.
Samkvæmt tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum í gærkvöldi barst tilkynning um slysið klukkan 16:14 og varð strax ljóst á vettvangi að um alvarlegt slys væri að ræða.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗