Einn lést í umferðarslysi á Suðurstrandarvegi
Einn lést í umferðarslysi á Suðurstrandarvegi í gær þar sem vörubifreið og fólksbíll rákust saman.
Einn lést í umferðarslysi á Suðurstrandarvegi í gær þar sem vörubifreið og fólksbíll rákust saman.
Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum kemur fram að ökumaður fólksbifreiðarinnar hafi látist. Einn í vörubifreiðinni og einn í fólksbifreiðinni.
Fram kom í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum í gær að eldur hafi kviknað í fólksbifreiðinni og að fjölmenn lið viðbragðsaðila frá lögreglunni á Suðurnesjum, Brunavörnum Suðurnesja og Slökkviliði Grindavíkur hafi farið á vettvang.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsakar málið.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗