Réðst ítrekað á lögreglumann - Iðrast gjörða sinna og hefur leitað sér hjálpar
Karlmaður var í gær dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ráðast ítrekað á lögreglumann við skyldustörf.Atv…
Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. nóvember 2026 12:30
Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: Sigtryggur Ari
Karlmaður var í gær dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ráðast ítrekað á lögreglumann við skyldustörf.
Atvikin áttu sér stað laugardaginn 17. janúar síðastliðinn. Maðurinn sló lögreglumanninn í brjóstkassann og veitti honum olnbogaskot í andlitið þegar þeir voru staddir í lögreglubifreið. Olnbogaskotið hafnaði við vinstri augabrún lögreglumannsins.
Maðurinn lét ekki þar við sitja því þegar komið var í fangamóttöku lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu sparkaði hann aftan í hægra læri lögreglumannsins.
Ekki kemur fram í dómnum hver aðdragandi málsins var.
Maðurinn játaði brot sitt skýlaust en fram kemur í dómnum að hann hafi leitað sér aðstoðar og lýst yfir iðrun vegna brots síns. Var allt þetta virt honum til málsbóta við ákvörðun refsingar.
Var refsing hans talin hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi en fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skilorð.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗