Pálmi biður útgerðina að „kíkja í budduna“ – rifjar upp hvað afi hans gerði
Pálmi Gestsson leikari veltir því upp hvort efnaðar útgerðir gætu lagt fé til kaupa á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.Í færslu á Facebook…
Pálmi Gestsson leikari veltir því upp hvort efnaðar útgerðir gætu lagt fé til kaupa á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.
Í færslu á Facebook rifjar hann upp að afi hans, sem réri á smábáti alla ævi, hafi ánafnað þyrlubjörgunarsjóði Gæslunnar þá fjármuni sem hann lét eftir sig.
Afi Pálma, Sigurgeir Sigurðsson, var sjómaður og bóndi, fyrst í Folafæti undir Hesti í Ísafjarðardjúpi og síðar í Bolungavík. Pálmi segir afa sinn hafa verið einn sinn besta vin og þann sem hafði mest áhrif á hann í æsku fyrir utan foreldra hans.
Þegar almenn söfnun stóð yfir fyrir björgunarþyrlu gekk Sigurgeir frá því að peningarnir sem hann léti eftir sig rynnu í sjóðinn. Að sögn Pálma hafði afi hans misst marga vini, kunningja og ættingja í hafið. Margir í yngri kynslóð fjölskyldunnar stunduðu líka sjó og Sigurgeir leit á það sem skyldu sína að leggja sitt af mörkum til að bæta öryggi þeirra.
„Afhverju er ég að rifja þetta upp? Jú, ég fór að velta fyrir mér í allri auðmýkt fyrst sjómaður sem réri á smábáti sínum alla ævina gat og vildi ráðstafa aurunum sem hann lét eftir sig svona, væri þá nokkuð mikil frekja að biðja auðuga útgerðina að kíkja í budduna og gá hvort ekki leyndust einhverjar aukakrónur sem setja mætti í kaup á Landhelgisgæsluþyrlu,“ skrifar Pálmi.
Margir þeirra sem tjá sig undir færslunni taka undir með honum. Einn stingur upp á því að einhver stór útgerð taki af skarið og fái aðrar útgerðir til liðs við sig.
Aðrir vilja tryggja regluleg framlög. Í einni athugasemd er lagt til að útgerðum verði gert að greiða í björgunarsjóð. Í annarri er stungið upp á að ákveðin krónutala af hverju kílói af lönduðum afla renni í þyrlusjóð.
„Nei Pálmi, það væri ekki mikil frekja. Einmitt það sem mörg okkar hafa hugsað í dag,“ skrifar einn þeirra sem svara færslunni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗