Segir 9 milljónir aðeins duga fyrir tveimur drónum

Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að níu milljóna króna framlag sem lagt er til í nýrri byggðaáætlun dugi aðeins til að kaupa og setja upp tv…

Hér má sjá mynd úr safni af lögregludróna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á og notar. mbl.is/Eyþór

Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að níu milljóna króna framlag sem lagt er til í nýrri byggðaáætlun dugi aðeins til að kaupa og setja upp tvo löggæsludróna.

Samkvæmt tillögunni á að þróa tilraunaverkefni embættisins áfram og nýta reynsluna annars staðar á landinu.

Í umsögn til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis segir Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri að einn dróni kosti um 4,5 milljónir króna með uppsetningu.

Embættið fagnar því að verkefnið sé tekið upp í byggðaáætlun en telur fjárhæðina of lága til að byggja upp slíka starfsemi í einu umdæmi, hvað þá á landsvísu.

Auk búnaðar þarf að kosta þjálfun starfsfólks og tryggja mönnun til að stýra drónunum.

Í umsögn til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis segir Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri að einn dróni kosti um 4,5 milljónir króna með uppsetningu. mbl.is/Þorgeir

Tíu drónar í notkun

Lögreglan hóf samstarf við sveitarfélög í umdæminu um löggæsludróna í maí 2025 og rekur nú tíu dróna. Þeir eru meðal annars í Hrísey, Grímsey og á Húsavík og er þeim einkum fjarstýrt frá lögreglustöðinni á Akureyri.

Lögreglan hefur lagt áherslu á að nýta þá í fyrstu viðbrögðum við útköllum þar sem lögregla hefur ekki viðveru allan sólarhringinn.

Í þingsályktunartillögunni er gert ráð fyrir að verkefnið standi yfir frá 2027 til 2029. Árangurinn á meðal annars að mæla með því að kanna hvort drónarnir stytti tímann frá því að útkall berst þar til lögregla hefur nægar upplýsingar til að meta aðstæður á vettvangi.

Lögreglan á Norðurlandi eystra kveðst reiðubúin að leiða uppbyggingu á öðrum svæðum ef viðkomandi lögregluembætti vilja taka þátt.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab