Útilokar ekki gagnaleka hjá Reykjavíkurborg

Fregnir um það hvort árásaraðilar hafi komist yfir lykilorð og inn í gagnagrunn borgarinnar eru enn óstaðfestar að sögn Magna.

Ekki er útilokað að gagnaleki hafi komið upp í netárásinni.

Ekki er útilokað að gagnaleki hafi komið upp í netárásinni. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Enn er ekki hægt að útiloka að gögn hafi lekið í netárásinni á Reykjavíkurborg á miðvikudag. Ekki liggur fyrir hvort árásaraðilar hafi komist yfir persónuupplýsingar.

Þetta segir Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður hjá netöryggissveitinni CERT-IS, í samtali við mbl.is í dag.

Hann segir árásaraðila gjarnan sækjast eftir gögnum sem geti nýst þeim til að komast dýpra inn í tölvukerfi. Ekki sé þó endilega um persónugögn að ræða.

Magni Reynir Sigurðsson

Magni Reynir Sigurðsson

Rangar eða óstaðfestar upplýsingar?

Óskar Jörgen Sandholt, sviðsstjóri þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við mbl.is í gær að ýmsar upplýsingar sem væru í umferð um netárásina ættu sér ekki stoð.

Magni sagði einnig í samtali við mbl.is í gær að upplýsingar um hvernig brotist var inn í kerfi borgarinnar hefðu ekki að öllu leyti samræmst athugunum netöryggissveitarinnar.

Spurður í dag hvaða upplýsingar hann hafi átt við nefnir Magni fréttir um skýjaumhverfi Microsoft Azure. Hann telur að of snemmt hafi verið farið af stað með fréttir um hvernig árásaraðilar komust inn í kerfi borgarinnar, enda hafi greining ekki legið fyrir.

Spurður sérstaklega hvort upplýsingar um að árásaraðilar hafi komist yfir lykilorð og inn í gagnagrunn borgarinnar séu rangar eða einfaldlega óstaðfestar segir Magni þær óstaðfestar. Það sé Reykjavíkurborgar að staðfesta þær.

Borgin ræður upplýsingagjöfinni

Óskar vísaði í gær á CERT-IS þegar leitað var svara um umfang árásarinnar. Magni segir netöryggissveitina hins vegar ekki hafa umboð til að veita ítarlegar upplýsingar um einstök atvik.

„Við erum bara bundin trúnaði,“ segir Magni.

Hlutverk sveitarinnar sé að greina hvað gerðist og koma upplýsingum til þeirra sem vinna að rannsókn málsins og endurreisn kerfanna, auk þess að upplýsa þann aðila sem varð fyrir árásinni.

Reykjavíkurborg geti óskað eftir því að CERT-IS veiti frekari upplýsingar um árásina en það hafi ekki verið gert.

Magni kveðst ekki hafa upplýsingar um hvort málið hafi verið sent til lögreglu.

Ekki hefur náðst í forsvarsmenn Reykjavíkurborgar í dag til að fá nánari skýringar á því hvaða upplýsingar borgin telur rangar.

Innbrotstilraunir halda áfram

Magni segir stöðuna í netöryggismálum hér á landi að mestu óbreytta frá því í gær.

Töluvert hafi borist af tilkynningum um innbrotstilraunir í gær en varnir fyrirtækja og stofnana hafi haldið. Engar tilkynningar um ný, staðfest innbrot hafi borist í gær eða það sem af er degi.

Magni telur ekki að árásum sé sérstaklega beint að íslenskum fyrirtækjum og stofnunum. Árásaraðilar nýti gervigreindartól í miklum mæli til að leita að veikleikum í tölvukerfum um allan heim.

Stefnt að því að opna kerfin í dag

Að sögn Magna er stefnt að því að koma þjónustu Reykjavíkurborgar í eðlilegt horf í dag. Nákvæm tímasetning liggur þó ekki fyrir.

Þá kemur fram í frétt RÚV í dag að Persónuvernd hafi verið tilkynnt um netárásina.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab