Í toppstandi eftir erfiðleika á Englandi

„Það var svolítið erfitt að ná sér á strik með lið með svona mikinn pening sem kaupir bara níu leikmenn í hverjum glugga,“ sagði Alfons Sampsted…

Alfons Sampsted.

„Það var svolítið erfitt að ná sér á strik með lið með svona mikinn pening sem kaupir bara níu leikmenn í hverjum glugga,“ sagði Alfons Sampsted, knattspyrnumaður hjá Go Ahead Eagles í Hollandi, í samtali við Morgunblaðið um dvöl sína hjá Birmingham á Englandi.

Alfons fékk minni spilatíma hjá enska félaginu en hann hafði vonast eftir og glímdi einnig við meiðsli.

„Í Birmingham var minni spilatími og ég var meiddur yfir mitt tímabilið í fyrra.“

Hann og Willum Þór Willumsson, sem var einnig hjá Birmingham, ræddu stöðuna sín á milli. Þeir hafa verið vinir frá æskuárunum og leituðu ráða hvor hjá öðrum.

„Við komumst báðir að þeirri niðurstöðu að það væri í okkar hag að yfirgefa Birmingham til þess að ná í fleiri mínútur og fá tilfinninguna að maður væri að spila stöðugt fótbolta aftur.“

Alfons hefur fundið þá rútínu hjá Go Ahead Eagles.

„Ég er kominn í góða rútínu, spila helling og er bara í toppstandi.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab