Svíar fá að heyra það eftir tapið gegn Íslandi
Sænski handboltablaðamaðurinn Johan Flinck gagnrýndi Svía harðlega eftir 29:28-tapið gegn Íslandi í gær og sagði fyrri hálfleikinn einn þann sla…
Sænski handboltablaðamaðurinn Johan Flinck gagnrýndi Svía harðlega eftir 29:28-tapið gegn Íslandi í gær og sagði fyrri hálfleikinn einn þann slakasta sem hann hefði séð frá kvennalandsliðinu.
Í pistli í Aftonbladet benti Flinck á að Ísland hefði unnið þrátt fyrir að missa Elínu Klöru Þorkelsdóttur af velli vegna hnémeiðsla eftir fimm mínútur.
„Svíþjóð ætti, eins og Tomas Axnér sagði, að vinna Ísland með fimm eða sex mörkum“ jafnvel án nokkurra reyndra leikmanna, skrifaði hann.
Flinck efaðist um að sænska liðið væri tilbúið fyrir Evrópumótið í næstu viku. „Hvar stendur þetta nýja landslið?“ spurði hann. „Hver stígur fram og tekur ábyrgð þegar leikurinn fer úr böndunum?“
„Þær vinna líklega með að minnsta kosti sex mörkum í seinni leiknum gegn Íslandi á laugardaginn. En það þurrkar ekki út þessa frammistöðu. Þessum leik má ekki gleyma þegar Evrópumótið hefst.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗