Spáð stormi eða roki og snjókomu
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðausturland og miðhálendið á morgun en spáð er sunnan stormi eða roki og snjókomu á miðhálendin…
Innlent | mbl | 27.11.2026 | 11:24
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðausturland og miðhálendið á morgun en spáð er sunnan stormi eða roki og snjókomu á miðhálendinu.
Í tilkynningu á vef Veðurstofunnar kemur fram að annað kvöld gangi í sunnan 23-28 m/s með hríð á miðhálendinu þar sem vindhviður geta náð allt að 45 m/s austan til á svæðinu. Gul viðvörun tekur gildi klukkan 20 annað kvöld.
Á Suðausturlandi tekur gul viðvörun gildi klukkan 21 annað kvöld en spáð er sunnan 20-25 m/s og hviðum yfir 35 m/s.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗