Segir 48 síðna héraðsdóm lengri en efni standa til
Landsréttur gerir athugasemdir við samningu 48 síðna dóms Héraðsdóms Reykjaness og telur dóminn lengri en efni standa til.
Landsréttur bendir á að samkvæmt lögum um meðferð einkamála er kveðið á um að dómar skuli vera stuttir og glöggir. Ljósmynd/Colourbox
Landsréttur gerir athugasemdir við samningu 48 síðna dóms Héraðsdóms Reykjaness og telur dóminn lengri en efni standa til.
Samning hans fari að þessu leyti í bága við ákvæði laga um meðferð einkamála, þar sem kveðið er á um að dómar skuli vera stuttir og glöggir.
Þetta kemur fram í dómi Landsréttar sem kveðinn var upp í gær í máli fyrrverandi framkvæmdastjóra markaðssviðs fyrirtækis sem taldi sér hafa verið mismunað við ákvörðun launa og úthlutun kauprétta.
Héraðsdómurinn var kveðinn upp 5. ágúst í fyrra.
Langir kaflar teknir orðrétt upp
Landsréttur bendir á að málsástæðum og lagarökum aðila sé lýst í héraðsdóminum með því að taka efni stefnu og greinargerðar um þau atriði að stórum hluta svo til orðrétt upp.
Í niðurstöðukafla dómsins séu röksemdum aðila síðan gerð nokkur skil að nýju í löngu máli. Þar séu jafnframt langir kaflar úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála teknir orðrétt upp eða efni úrskurðarins rakið.
„Þessi háttur á samningu dómsins, sem er 48 síður að lengd, gerir það að verkum að hann er lengri en efni standa til. Fer samning hans að þessu leyti í bága við 3. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991, þar sem segir að dómar skuli vera stuttir og glöggir,“ segir í dómi Landsréttar.
Varnir fyrirtækisins ekki teknar til skoðunar
Landsréttur ómerkti héraðsdóminn að hluta en sú niðurstaða byggðist á því að héraðsdómur hafði ekki tekið varnir fyrirtækisins varðandi lögmæti uppsagnar konunnar til efnislegrar skoðunar.
Héraðsdómur hafði talið niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála um ólögmæti uppsagnarinnar bindandi fyrir málsaðila, viðurkennt skaðabótaskyldu fyrirtækisins vegna uppsagnarinnar og gert því að greiða konunni eina milljón króna í miskabætur.
Landsréttur taldi hins vegar að fyrirtækinu hefði verið heimilt að halda uppi vörnum gegn kröfum konunnar án þess að höfða sjálfstætt mál eða gagnsök til ógildingar á þeim hluta úrskurðar kærunefndarinnar.
Var þeim hluta málsins sem laut að viðurkenningu á skaðabótaskyldu fyrirtækisins vegna uppsagnarinnar og greiðslu miskabóta því vísað aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.
Taldi sér mismunað við ákvörðun kjara
Konan taldi sér hafa verið mismunað á grundvelli kyns, kynþáttar og þjóðernisuppruna við ákvörðun launa og úthlutun kauprétta. Að hennar sögn munaði meðal annars um 144 milljónum króna á greiðslu samkvæmt kaupréttarsamningi hennar og greiðslu til framkvæmdastjóra tæknisviðs fyrirtækisins.
Henni var sagt upp störfum í september 2021, tveimur dögum eftir að hún ítrekaði kröfur sínar vegna meintrar mismununar.
Landsréttur staðfesti sýknu fyrirtækisins af kröfum konunnar um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna meintrar mismununar við ákvörðun launa og kaupréttar.
Taldi rétturinn ekki annað séð en að málefnalegar ástæður, sem ekki tengdust kyni, kynþætti eða þjóðernisuppruna, hefðu legið til grundvallar ákvörðun fyrirtækisins um kjör konunnar.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗