Þyrla kölluð út vegna bogfimi

Amar Dedic, leikmaður Newcastle United, kom af stað umfangsmikilli lögregluaðgerð fyrr í þessum mánuði þegar hann var við bogfimi ásamt vini sín…

Amar Dedic, leikmaður Newcastle United, kom af stað umfangsmikilli lögregluaðgerð fyrr í þessum mánuði þegar hann var við bogfimi ásamt vini sínum.

Vegfarandi hafði samband við lögreglu eftir að hafa komið auga á Dedic með boga og örvar í Northumberland á Englandi.

Sex lögreglubílar voru kallaðir út vegna málsins og þá tók lögregluþyrla einnig þátt í leitinni að leikmanninum.

Samkvæmt Daily Mail voru Dedic og vinur hans einfaldlega að skjóta örvum í tré sér til skemmtunar þegar atvikið átti sér stað.

Þegar lögregla hafði gengið úr skugga um að Bosníumaðurinn væri ekki ógn við almenning fékk hann að fara frjáls ferða sinna en bogfimibúnaðurinn var gerður upptækur.

Dedic gerði síðar grín að atvikinu á samfélagsmiðlum þegar Newcastle greindi frá því að hann hefði verið valinn í landslið Bosníu. Hann birti mynd af Legolas úr Hringadróttinssögu með boga og örvar.

Dedic, sem kom til Newcastle frá Benfica í sumar, hefur leikið tólf leiki fyrir félagið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab