Jón veit hvernig það er að berjast fyrir lífi sínu í ísköldum sjó: „Þetta fer aldrei“

Jón Snæbjörnsson skipstjóri þekkir af eigin raun þann hrylling sem skipverjar á Jökli gengu í gegnum í vikunni.

Jón Snæbjörnsson skipstjóri þekkir af eigin raun þann hrylling sem skipverjar á Jökli gengu í gegnum í vikunni. Hann var um borð í flutningaskipinu Suðurlandi þegar það sökk á jólanótt árið 1986 og beið björgunar í tólf klukkustundir við mjög erfiðar aðstæður.

Í samtali við Morgunblaðið í dag rifjar Jón upp þessa örlagaríku nótt fyrir tæpum 40 árum. Suðurland var á leið til Múrmansk með fullfermi af síld þegar mikið högg kom á skipið. Grunsemdir hafa verið uppi um að kafbátur hafi rekist á skipið en það hefur aldrei verið sannað.

Innan við hálftíma síðar voru skipverjarnir komnir í sjóinn. Þeir voru margir hverjir í sparifötunum og blankskóm enda jólahátíðin gengin í garð. Skipið sökk þar sem það var 240 sjómílur austur af landinu, en leiðindaveður var á svæðinu, 5-6 metra ölduhæð og sjávarhiti um 2-3 gráður.

Átta skipverjar komust um borð í björgunarbát en botn hans hafði rifnað. Stóðu mennirnir því upp í klof í ísköldum sjónum, og stundum hærra, klukkustundum saman. Þrír þeirra létust í bátnum.

„Maður hugsar heim og maður leiðir hjá sér aðstæðurnar sem maður er í og hugsar bara um að halda áfram og passa upp á félagana sína,“ segir Jón.

Líkamshiti mannanna var kominn niður í 30 gráður eða jafnvel neðar þegar þeim var bjargað.

Fréttirnar af Jökli í vikunni vöktu upp erfiðar minningar hjá Jóni.

„Þetta fer aldrei. Í gær þegar ég fylgdist með fréttum þá lá við að ég færi að gráta. Einhver blanda af reiði og sorg.“

Jón, sem hóf störf hjá Landhelgisgæslunni árið 1972, gagnrýnir jafnframt fjárveitingar til Gæslunnar og segir hana hafa búið við svelti um árabil.

„Við erum eyþjóð og við verðum að gera þetta betur.“

Nánar er rætt við Jón í Morgunblaðinu í dag.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab