„Þetta var var einmitt augnablikið sem margir biðu eftir að sjá“

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst og fyrrverandi alþingismaður, tjáir sig um sjóslysið á miðvikudag þegar línuveiðiskipi…

Ragna Gestsdóttir

Ragna Gestsdóttir

Föstudaginn 27. nóvember 2026 11:30

Sigmundur Ernir Rúnarsson, Ragnhildur Helgadóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Ragnheiður Jóna Jónsdóttir og Bogi Ágústsson. Samsett mynd/Pexels

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst og fyrrverandi alþingismaður, tjáir sig um sjóslysið á miðvikudag þegar línuveiðiskipið Jökull ÞH299 sökk, þrír skipverjar létust og 14 var bjargað. 

Vottar Ólína aðstandendum samúð sína um leið og hún fagnar lífbjörg hinna. 

„Ég votta aðstandendum sjómannanna þriggja mína dýpstu samúð um leið og ég fagna af heilum hug lífbjörg hinna fjórtán. Það leikur lítill vafi á því að þeirra eigin hetjulund - rétt viðbrögð og góð þjálfun - hefur átt þátt í því að ekki fór verr.“

Í færslu sinni sem Ólína birti í gær hrósar hún einnig þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar og deilir mynd sem gæslan birti af þeim í gær: 

„Þyrluáhöfnin sem tók sjálfstæða dómgreindarákvörðun og ákvað að meta sjálf flughæfni þyrlunnar og eigin getu óháð regluverkinu, á heiður skilinn fyrir mennsku sína og áræði. Svo stór var þeirra gjörð að orð mega sín lítils.“

Helgi Guðnason, stýrimaður, Bergur Stefánsson, læknir, Jens Sigurðarson, flugstjóri, Elvar Már Sigurðsson, stýrimaður, Brynhildur Ásta Bjartmarz, flugmaður, Jón Tómas Vilhjálmsson, flugvirki. Mynd/Landhelgisgæslan

Ólína gerir einnig að umtalsefni gagnrýni sem komið hefur á fjölmiðla nú sem oftar vegna myndbirtinga og efnistaka. 

„Fjölmiðlar hafa að mínu mati staðið sig aðdáunarlega við að færa okkur fréttir af sjóslysi og björgun sem öll þjóðin hefur fylgst með síðan í gær. Þó dynja á þeim fordæmandi ummæli á ýmsum spjallþráðum samfélagsmiðlanna yfir myndbirtingum og efnistökum sem hafa þó verið vel ígrunduð og öguð.

Þegar svo alvarlegir atburðir gerast er þörf á fjölmiðlun og áreiðanlegri upplýsingagjöf. Þögn og leyndarhyggja er aldrei til bóta, en auðvitað þarf að vanda upplýsingastreymið og taka tilliti til aðstandenda og þeirra sem um er rætt. Fjölmiðlar okkar stóðust vel það próf að þessu sinni og fyrir það megum við þakka.“

Meðal annars var amast við myndbirtingu RÚV,  í kvöldfréttum á fimmtudag, af skipverjum Jökuls ganga frá borði þyrlunnar á Egilsstöðum. Um það segir Ólína: 

„Myndskeiðið á RÚV af mönnunum ganga frá borði þyrlunnar var hamingjustund þrungin harmi. Ég sá einhverja amast við þessari myndbirtingu og mér er það óskiljanlegt. Þetta var var einmitt augnablikið sem margir biðu eftir að sjá.

Þegar svona atburðir gerast slær sjálft þjóðarhjartað. Þá verðum við þátttakendur hvort sem það var ætlun okkar eða ekki. Sem betur fer er okkur ekki sama um hvert annað. Fréttamiðlun og upplýsingagjöf eiga ríkan þátt í þeirri samkennd okkar.“

Margir tjá sig við færslu Ólínu og hrósa henni fyrir orð hennar. 

Þeirra á meðal er Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, sem segir: „Takk, Ólína, fyrir góða greiningu og nærfærni.“

„Tek undir hvert orð, vinkona kær“, segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar og rithöfundur.

Bogi Ágústsson fyrrum fréttamaður RÚV: „Takk fyrir þessi skrif gamli félagi!“

„Svo sammála þér Ólína. Og allt þetta fjaðrafok og pex særir. Betra að hafa færri orð og sýna þakklæti og nærgætni. Sýna þeim virðingu sem í þessum mannraunum lentu,“ segir Ragnheiður Jóna Jónsdóttir stofnandi Hannesarholts menningarhúss. 

Margrét Hrafnsdóttir kvikmyndargerðarkona hjartar færslu Ólínu.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab