Skotgálgar eru séríslenskur búnaður

Skipaverkfræðingur gagnrýnir að hér við land sé enn heimiluð notkun á séríslenkum losunarbúnaði fyrir björgunarbáta. Vottun björgunarbáta nái ek…

Kári Logason skipaverkfræðingur gagnrýnir að hér við land sé enn í notkun séríslensku skotbómubúnaður til að losa björgunarbáta frá skipum. Í bakgrunni er mynd frá æfingu Landsbjargar. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg/Eyþór Árnason

Í gegnum árin hefur ítrekað komið upp að björgunarbátar hafa ekki losnað úr festingum sínum í sjóslysum hér við land.

Kári Logason skipaverkfræðingur bendir á að björgunarbátar íslenskra fiskiskipa séu almennt ekki uppsettir samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda. Þetta hafi verið gert að kröfu íslenskra yfirvalda.

Kári segir að í framhaldi af þeim harmleik sem varð þegar Jökull ÞH sökk austur af landinu sé ómögulegt annað en að vekja athygli á atriði sem snýr að útbúnaði björgunarbáta.

Ekki gangrýni á nýskeð slys

„Fyrst skal þó segja að hugur minn er hjá fjölskyldum þeirra sem fórust og þeim sem komust lífs af. Votta ég þeim alla mína samúð sem og að ég sendi innilegar þakkir til allra björgunaraðila og áhafna fiskiskipa sem tóku þátt í björgun þennan örlagaríka dag,“ segir hann.

Kári áréttar að athugasemdir hans séu ekki með nokkrum hætti ætlaðar sem gagnrýni á nýskeða atburði, hvorki á áhöfn né útgerð Jökuls ÞH. Ekkert sé enn hægt að gera sér um áhrif þeirra þátta sem hann gagnrýnir hafi haft áhrif á að skipverjar Jökuls náðu ekki til sinna björgunarbáta.

Það snúi að Rannsóknarnefnd samgönguslysa að upplýsa um þessa þætti.

Engir björgunarbátar vottaðir fyrir skotgálga

Kári bendir á að til áratuga hafi stjórnvöld gert kröfu um, og heimili enn, að gúmmíbjörgunarbátum sé skotið frá skipi með búnaði sem enginn björgunarbátur á markaði sé vottaður fyrir.

„Bátarnir eru prófaðir til að falla í sjóinn, ekki til að vera skotið út,“ segir hann og bendir á að samkvæmt frásögn skipverja á Jökli hafi annar björgunarbáturinn verið fastur og hinn rekið frá þeim.

„Þegar sjósetningargálgar eins og voru á Jökli eru virkjaðir er björgunarbátunum skotið frá borði með miklu afli. Alþjóðlega er þetta þannig að bátarnir eru látnir falla í sjóinn undan eigin þunga og eru vottaðir fyrir það, ekki vottaðir fyrir þessa skotgálga og ekki prófaðir fyrir slíka meðferð.“

En valkvætt að nota gálgana

Hann bendir á að fyrst 2024 hafi með reglugerð verið fallið frá þeirri séríslensku kröfu að fiskiskip væru búin skotgálgum á hvorri hlið fyrir að minnsta kosti einn bát.

Ný reglugerð hafi gert þetta valkvætt en heimili enn notkun skotgálganna sem séu áfram um borð í fjölda skipa, nýrri sem eldri.

„Þetta er séríslensk krafa sem á sér enga hliðstæðu í alþjóðlegum reglum eða á hinum Norðurlöndunum.“

Allur annar björgunarbúnaður um borð þurfi að falla í einu og öllu að leiðbeiningum framleiðanda um uppsetningu slíks búnaðar.

„Skotgálgarnir voru framfaraskref þegar þeir komu fram fyrir um fjórum áratugum. Þá voru engar alþjóðlegar kröfur um fyrirkomulag og sjósetningu slíkra báta. Síðan hefur alþjóðlegur búnaður þróast langt fram úr þeim, en íslenskt regluverk ekki með,“ segir Kári.

Í dag séu til stýrishjólsmerktar losunarmembrur með fjarlosun úr brú og losunarvirkni þegar búnaður fer á kaf í sjó, auk rekka sem séu hannaðir af framleiðanda björgunarbáta til að standast alþjóðlegar kröfur.

Hvetur útgerðir til að bregðast við

„Sá búnaður er notaður um allan heim, einnig á heimskautasvæðum þar sem aðstæður eru síst betri en við Ísland.“

Kári segir hann sjálfan og kollega hans margoft hafa vakið athygli á þessu í gegnum tíðina. Þá hafi Rannsóknarnefnd samgönguslysa undanfarin ár í fleiri en einu slysi bent á að losunarbúnaður björgunarbáta hafi ekki virkað sem skyldi.

Hann spyr af hverju hér sé enn heimilaður búnaður sem enginn björgunarbátur sé vottaður fyrir.

Margar útgerðir segir hann að hafi nú þegar skipt búnaðinum út en engar almennar ábendingar hafi verið sendar af opinberum aðilum þar sem bent hafi verið á þessa annmarka.

„Ég hvet því alla sem gera út skip með þessum búnaði til að breyta þessu fyrirkomulagi til hins betra, með öryggi íslenskra sjómanna í huga.“

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab