Snorri um hetjudáð Elvars og félaga: „Að eiga svona fólk er að búa í góðu samfélagi“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir að við þá miklu sorg sem fylgt hefur sjóslysinu austur af landinu blandist stolt og djúpt þakklæti …
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir að við þá miklu sorg sem fylgt hefur sjóslysinu austur af landinu blandist stolt og djúpt þakklæti í garð þeirra sem lögðu eigið líf í hættu til að bjarga skipverjum af Jökli.
Í færslu á Facebook í morgun gerir Snorri framgöngu Elvars Más Sigurðssonar, sigmanns hjá Landhelgisgæslunni, sérstaklega að umtalsefni en hann sótti sextán skipverja úr sjónum við afar krefjandi aðstæður.
Snorri vísar í viðtal Morgunblaðsins við Elvar þar sem hann lýsti því hvernig hann einbeitti sér að verkefninu þrátt fyrir að engin æfing hefði getað búið hann undir þær aðstæður sem biðu hans.
„Það verður ekki horft fram hjá því að þarna talar 45 ára gamall þriggja barna faðir. Líkt og félagar hans lagði Elvar eigið líf í hættu til að bjarga lífi ókunnugra. Svo alvarlega tekur hann skyldur sínar við samfélagið,“ segir Snorri og bætir við:
„Það er engin furða þótt tilfinningarnar beri mann stundum ofurliði þegar við sorgina blandast þetta mikla stolt og djúpa þakklæti. Að eiga svona fólk er að búa í góðu samfélagi.“
Snorri bendir jafnframt á að yngri kynslóðir Íslendinga hafi búið við þann veruleika að alvarleg sjóslys séu fátíð. Miklar framfarir í öryggismálum geti hins vegar orðið til þess að værukærð grípi um sig.
„Hætturnar geta farið að virðast fjarlægari, en á svona stundum verður öllum ljóst að þær hverfa aldrei.“
Hann segir hörmungar síðustu daga minna rækilega á mikilvægi þess að öryggismál sjómanna skipi þann sess sem þeim ber í forgangsröðun íslenskra stjórnvalda. Hugur hans sé nú hjá aðstandendum þeirra sem létust og þeim sem komust lífs af og þurfa að vinna úr þungri lífsreynslu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗