Féll á lyfjaprófi og missir af umspilinu
Magnus Lankhof Dahlby, 27 ára knattspyrnumaður hjá norska B-deildarfélaginu Stabæk, hefur verið settur í bann frá æfingum og leikjum eftir að ha…
Magnus Lankhof Dahlby, 27 ára knattspyrnumaður hjá norska B-deildarfélaginu Stabæk, hefur verið settur í bann frá æfingum og leikjum eftir að hafa fallið á lyfjaprófi í kjölfar leiksins gegn Kongsvinger í byrjun mánaðar.
„Málið tengist á engan hátt löngun eða tilraun til að bæta frammistöðu,“ sagði Dahlby í yfirlýsingu frá félaginu.
„Mér þykir þetta afar leitt og bið félagið og liðsfélaga mína afsökunar. Ég er í samstarfi við Antidoping Norge og mun aðstoða við að upplýsa málið.“
Dahlby hefur leikið 19 deildarleiki á tímabilinu. Hann missir af umspilsleiknum um sæti í efstu deild gegn Odd á sunnudag á meðan rannsókn stendur yfir.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗