Kýldi markvörðinn og rak sjö af velli

Bólivíski knattspyrnudómarinn Jordy Alemán kýldi Cristian Martínez, markvörð Real Potosí, í andlitið eftir seinni leik úrslitaeinvígisins í bóli…

Dómarinn gaf nokkur rauð spjöld fyrir höggið.

Dómarinn gaf nokkur rauð spjöld fyrir höggið. AFP/Adrian Dennis

Bólivíski knattspyrnudómarinn Jordy Alemán kýldi Cristian Martínez, markvörð Real Potosí, í andlitið eftir seinni leik úrslitaeinvígisins í bólivíska bikarnum gegn Always Ready.

Leikmenn umkringdu dómarann til að mótmæla eftir markalaust jafntefli sem tryggði Always Ready 3:1-sigur samanlagt. Í átökunum rak Alemán fjóra leikmenn og þrjá úr þjálfarateymi Real Potosí af velli.

Martínez sagði að honum hefði blætt úr munninum eftir höggið og viðurkenndi að hafa sagt við dómarann: „Ég vona að mamma þín deyi.“

Argentínumaðurinn, sem er 29 ára, tilkynnti síðar á samfélagsmiðlum að hann myndi ekki höfða mál. „Að mínu mati er þessu máli lokið og vil ég koma í veg fyrir að málið valdi frekari deilum,“ skrifaði hann.

Myndskeið af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.

Insólito!!! El árbitro Jordy Alemán completamente descontrolado, golpea a Cristian Martínez, arquero argentino de @Club_RealPotosi, tras la finalización de la Final de la Copa Paceña, donde se consagró campeón Always Ready. Video @entelgol https://t.co/zFxzYRyrNr

— Agustín Suárez⭐🌟⭐ (@A_SuarezDoreski) November 26, 2026

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab